Færði gjalddaga um nokkur ár 22. desember 2010 06:00 Jón Helgi Guðmundsson
Straumborg, fjárfestingafélag Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu, tapaði sjö milljörðum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Tap félagsins síðastliðin tvö ár nemur 14,7 milljörðum króna. Jón Helgi og fjölskylda á Norvik-samstæðuna, móðurfélag Nóatúns, Krónunnar, Elko, Byko og fleiri verslana. Straumborg heldur utan um erlendar eignir tengdar Norvik, svo sem í Lettlandi og Rússlandi. Straumborg á jafnframt tæpan fjórðungshlut í Norvik á Íslandi. Fyrir bankahrunið í október 2008 var hlutafjáreign Straumborgar í Kaupþingi metin á rúma 22 milljarða króna. Hlutafjáreignin var verðlaus í lok ársins. Eignir Straumborgar í fyrra námu 36,9 milljörðum króna samanborið við 42,3 milljarða árið á undan. Eigið fé nam rúmum 5,4 milljörðum króna miðað við tæpa 12,5 milljarða árið 2008. Eiginfjárhlutfall í lok síðasta árs var 14,5 prósent miðað við rúm 29 prósent í hittifyrra. Á móti eignum skuldar Straumborg tæpa 31,5 milljarða króna. Þar af eru tæp sextíu prósent í krónum. Lungi afborgana var á gjalddaga í fyrra. Straumborg gat ekki staðið skil á þeim og samdi við lánardrottna í apríl á þessu ári um lengingu á lánum til 2013. Það ár verður Straumborg að reiða fram 31 milljarð króna, miðað við endurnýjaða samninga. - jab
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira