Greining: Spáir 6,9% verðbólgu í febrúar 17. febrúar 2010 11:54
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,8% í febrúar eftir óvænta 0,3% lækkun í janúar. Gangi spáin eftir hækkar ársverðbólga úr 6,6% í 6,9%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að útsölulok hafa veruleg áhrif til hækkunar í febrúar að mati greiningarinnar, enda voru útsöluáhrif óvenju djúp í janúarmánuði. Samanlagt er gert ráð fyrir að verðhækkun á fatnaði, skóm og húsbúnaði ýmis konar vegna þessa vegi til tæplega 0,6% hækkunar VNV að þessu sinni. „Þá teljum við að sveiflukenndir liðir á borð við flugfargjöld til útlanda, sem samanlagt urðu til þess að lækka vísitölumælingu janúarmánaðar, muni hafa öfug áhrif nú. Auk þess erum við þeirrar skoðunar að áhrif af hækkun tekjuskatts og ýmissa annarra gjalda á neysluvarning eigi enn eftir að koma fram að nokkru leyti," segir í Morgunkorninu. „Eldsneytisverð hefur einnig hækkað nokkuð frá miðjum janúar og vegur sú hækkun til 0,05% hækkunar VNV. Síðast en ekki síst er að mati okkar útlit fyrir að ekki verði framhald í bili á hinni snörpu lækkun húsnæðisverðs sem fram kom í janúar. Þó gerum við ráð fyrir að lækkun húsnæðisverðs hafi áhrif til 0,1% lækkunar VNV í febrúar. Við spáum 1,7% hækkun VNV næstu 3 mánuði og spila útsölulok, síðbúin áhrif skattahækkana og síðustu dreggjar gengisáhrifa vegna falls krónu í fyrra þar stærstu hlutverk. Verðbólgan mun samkvæmt spá okkar ná hámarki í 8,2% í mars, enda fellur þá út úr verðbólgumælingunni mars á síðasta ári þegar VNV lækkaði um 0,6%. Þótt við eigum von á verulegri hækkun VNV í febrúar og nokkurri hækkun í mars teljum við að í kjölfarið muni draga mjög úr hækkunartakti vísitölunnar. Þegar áhrifum útsöluloka og nýlegra skattahækkana sleppir er fátt sem þrýstir upp verðlagi þessa dagana. Krónan er í grófum dráttum á svipuðum slóðum og hún var um mitt síðasta ár, en reynslan kennir okkur að bróðurparturinn af gengisáhrifum kemur fram í VNV innan sex mánaða. Því verða áhrifin af gengisfalli krónu á fyrri helmingi síðasta að fullu komin fram þegar vetrarútsölum lýkur að mati okkar. Á meðan ekki verða gerðar umtalsverðar breytingar á gjaldeyrishöftum virðist horfur allgóðar á að krónan muni halda sjó og jafnvel rúmlega það á næstu mánuðum líkt og verið hefur undanfarið. Erlendis er verðlag stöðugt og horfur á litlum verðhækkunaráhrifum úr þeirri áttinni. Á heimaslóðum teljum við að fasteignaverð muni halda áfram að síga niður á við fram eftir árinu, og enn lengra muni líða þar til það fer að vega til hækkunar á VNV. Síðast en ekki síst eru aðstæður á innlendum vinnumarkaði með þeim hætti að launaþrýstingur mun verða með minna móti næstu misserin. Verði krónan til friðs eru þannig allar líkur á að verðlag hækki hægar hér á landi þegar frá líður en raunin hefur verið undanfarin sjö ár eða svo. Spá okkar gerir ráð fyrir 3% verðbólgu í lok árs, og að verðbólga muni verða í grennd við 2,5% markmið Seðlabankans á næsta ári. Í spánni er gert ráð fyrir hægfara styrkingu krónu með svipuðum hætti og verið hefur undanfarna mánuði. Vart þarf þó að fjölyrða um hversu mikil óvissa ríkir um þá þróun, og er hún stærsti einstaki óvissuþátturinn í spá okkar."
Mest lesið Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent