Sitja uppi með hækkun á dreifigjaldi Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 29. ágúst 2010 12:00 Fjölskyldur virðast ekki getað vikið sér undan gjaldskrárhækkuninni. Mynd/ Róbert.
Fjögurra manna fjölskylda getur mest sparað sér um hundrað krónur á mánuði með því að skipta við annan smásala eftir gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Þeir sitja hins vegar uppi með stórfellda hækkun á dreifigjaldi Orkuveitunnar. Kaup venjulegs heimilis á raforku eru í grófum dráttum tvíþætt. Annars vegar greiðir heimilið fyrir rafmagnið sjálft, en alls eru sex fyrirtæki starfandi í smásölu á rafmagni. Hins vegar greiðir það fyrir dreifingu á rafmagni, en á höfuðborgarsvæðinu og víðar er Orkuveita Reykjavíkur með sérleyfi á dreifingunni. Framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitunni vann svar við fyrirspurn í maí síðastliðnum varðandi gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar. Þar segir að smásöluverð Orkuveitunnar þyrfti að hækka um 27 prósent, en dreifingin um 20 prósent til að mæta kröfum um bætta afkomu. Svo fór hins vegar að raforkuverðið, sem samkeppni ríkir um, var hækkað um 11 prósent en dreifigjaldið, sem Orkuveitan situr ein að, um 40 prósent. Dreifigjaldið var þannig hækkað mun meira en raforkuverðið sjálft, þrátt fyrir að skuldir fyrirtækisins vegna raforkusölu séu margfalt meiri en vegna dreifingarinnar samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar, segir neytendur ekki geta vikið sér undan hækkunum á dreifigjaldinu, þó sölukostnaður geti lækkað með öðrum smásala. Hann telur að fólk geti lækkað reikninginn vegna raforkunnar einnar í kring um fimm prósent miðað við þá kosti sem eru í boði eftir hækkun orkuveitunnar. Fjögurra manna fjölskylda í hundrað fermetra íbúð greiðir um 5800 króna rafmagnsreikning og þar af 1840 krónur fyrir söluhlutann. Þannig gæti fjölskyldan aðeins sparað um 92 krónur með því að skipta um raforkusala. Magnús gerir ráð fyrir að samkeppniseftirlitið og Orkustofnun fari yfir málið.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira