Tíu aðilar hafa gert tilboð í Haga 20. nóvember 2010 13:19 Matvöruverslunin Bónus er ein helsta eign Haga. Mynd/ Vilhelm.
Tíu aðilar, bæði innlendir og erlendir, hafa gert tilboð í smásöluverslanarisann Haga sem er í söluferli hjá Arion banka. Forstjóri Haga nýtur enn trausts til að gegna starfinu þrátt fyrir svimandi háa sekt vegna samkeppnislagabrota. Arion banki heldur utan um 99,5 prósenta hlut í smásöluverslanarisanum Högum, en fyrirtækið er nú söluferli. Tíu óskuldbindandi tilboð bárust í kjölfestuhlut í fyrirtækinu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Arion banki lýsti því yfir í október síðastliðnum þegar fyrirtækið var sett í söluferli að markmiðið væri að kjölfestufjárfestir, sem færi með 15-29 prósenta hlut, kæmi að fyrirtækinu og veitti því forystu til lengri tíma. Ekki fengust upplýsingar hjá Arion banka um nöfn þeirra sem gerðu tilboð eða hvers lenskir hinir erlendu tilboðsgjafar eru. Bankinn er bundinn trúnaði þar sem um óskuldbindandi tilboð er að ræða. Hins vegar verður upplýst um næstu þrep söluferlisins í næstu viku. Hagar voru dæmdir í Hæstarétti síðastliðinn fimmtudag til að greiða 315 milljónir króna sekt vegna samkeppnisbrota. Er sektin sú hæsta sem sett hefur verið á fyrirtæki vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Eftir þetta hófust umræður á varaldarvefnum um stöðu forstjóra fyrirtækisins, Finns Árnasonar. Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum hjá Arion banka hvort til stæði að gera breytingar á stjórnendateymi Haga, en bankinn á sína fulltrúa í stjórn fyrirtækisins. Iða Brá Benediktsdóttir, talsmaður Arion banka, segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að Arion banki beri traust til núverandi stjórnenda Haga til að reka félagið vel.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira