Fasteignakaupsamningum fækkar á ný Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 20. nóvember 2010 12:21 Höfuðborgarsvæðið. Mynd/ Vilhelm.
Enn dregur úr fasteignakaupum á höfuðborgarsvæðinu. Eftir að fasteignamarkaðurinn virtist vera að taka eilítið við sér í haust, fækkar kaupsamningum aðra vikuna í röð. 49 samningum vegna fasteignakaupa á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í vikunni - og hafa ekki verið færri í 3 mánuði. Markaðurinn lifnaði aðeins við í haust og náði hámarki fyrstu vikuna í september þegar 90 eignir seldust á höfuðborgarsvæðinu. Síðustu tvær vikur hefur salan hins vegar farið að dala á ný. Nokkuð ólík skilaboð hafa verið að berast til almennings um fasteignamarkaðinn, þannig segir nýjasta þjóðhagsspá Seðlabankans að fasteignaverð eigi enn eftir að fara lækkandi. Íslandsbanki velti hins vegar fyrir sér í morgunkorni fyrr í mánuðinum hvort framhald verði á verðhækkunum á íbúðamarkaði, en samkvæmt fasteignamati ríkisins hefur íbúðaverð heldur hækkað á höfuðborgarsvæðinu síðan í júlí - og er nú á svipuðum slóðum og það var í upphafi sumars. Fyrir tæpum mánuði hvatti formaður Félags fasteignasala stjórnvöld til að komast að niðurstöðu í skuldamálum heimilanna því fólk haldi að sér höndum á meðan það bíði eftir endanlegum úrræðum. Síðan þá hefur reiknimeistarahópur stjórnvalda skilað af sér skýrslu með útreikningum á kostnaði við flestar þær leiðir sem ræddar hafa verið opinberlega til að takast á við bólgnar skuldir heimilanna. Tíu dagar eru síðan hópurinn skilaði af sér, stjórnvöld hafa þó enn ekki gefið út hvað þau hyggist gera við niðurstöður hópsins.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Sjá meira