Viðskipti innlent

Lán til Björgólfsfeðga upp á yfir 2 milljarða án gagna

Forsvarsmenn Samsonar eignarhaldsfélags geta ekki gert grein fyrir lánum eða fyrirgreiðslum fyrir meira en tvo milljarða króna til að minnsta kosti sex félaga í eigu Björgólfsfeðga á Tortóla, Kýpur og Lúxemborg sem skráð eru í bókhaldi félagsins.

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Á vefsíðu blaðsins segir að í skýringum helstu stjórnenda Samsonar til skiptastjóra þrotabús félagsins segja þeir að eini maðurinn sem hefði upplýsingar um lánveitingarnar væri fyrrum framkvæmdastjóri Samsonar. Hann hefði þó fengið heilablóðfall árið 2007 og í kjölfarið hætt störfum hjá félaginu.

Í skriflegu svari Ásgeirs Friðgeirssonar, talsmanns Samsonar, til blaðamanns sem sent var í fyrra segir orðrétt að „... sá góði maður var þeirrar gerðar að hafa allt á hreinu en var lítið fyrir að deila því með öðrum."

Einu gögnin sem til eru um þessi lán í bókhaldi Samsonar er einn óundirritaður lánasamningur til Opal Global Holding um lán til þeirra upp á 580 milljónir króna.

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur hingað til verið rætt um bókhaldsóreiðu hjá Samson vegna lána til Tortólafélaga upp á um 800 milljónir kr. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins nær óreiðan nú yfir lán sem eru hátt í þreföld sú upphæð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×