FME gerði ekki ráð fyrir ríkisábyrgð á Icesave 14. janúar 2010 18:30
Fjármálaeftirlitið gerði ekki ráð fyrir að ríkisábyrgð væri á Icesave innistæðum í Bretlandi og Hollandi þegar útibú Landsbankans þar voru stofnuð. Eftirlitið bendir á að hvergi í lögum um innistæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta sé talað um ríkisábyrgð. Innlend fjármálafyrirtæki sem ætla að starfrækja útibú í öðru ríki á evrópska efnahagssvæðinu eiga að tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrirfram, samkvæmt lögum. Þremur mánuðum eftir að sú tilkynning berst skal Fjármálaeftirlitið senda lögbærum yfirvöldum viðkomandi landa ýmsar upplýsingar um bankann sem hyggst hasla sér völl þar. Þar á meðal upplýsingar um bótakerfi sem verndar viðskiptavini bankans. Fréttastofa leitaði upplýsinga um hvernig þessum málum var háttað þegar Landsbankinn stofnaði útibú sín í Bretlandi og Hollandi, þar sem Icesave reikningarnir voru. Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn fréttastofu segir að eftirlitið hafi ávallt sent upplýsingar um aðild viðkomandi fjármálafyrirtækis að Tryggingarsjóði innistæðueigenda og fjárfesta. Fjármálaeftirlitið vísaði einnig til þess í bréfum sínum að tryggingasjóðurinn væri byggður á viðeigandi reglum ESB er varða bótakerfi fyrir fjárfesta. Fjármálaeftirlitið bendir jafnframt á að hvergi í lögum um innistæðutryggingar sé talað um ríkisábyrgð á lánum sem tryggingasjóðurinn hefur heimildir til að taka. Samkvæmt þessu er ljóst að Fjármálaeftirlitið gerði ekki ráð fyrir að útibú Landsbankans í Bretlandi og Hollandi nyti ríkisábyrgðar ef illa færi.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira