Segja engar eigur á Tortola Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. janúar 2010 17:45 Björgólfur Guðmundsson var aðaleigandi Samsonar ásamt Björgólfi Thor syni hans. Mynd/ Valgarður.
Björgólfsfeðgar hafna því alfarið að óreiða hafi verið í bókhaldi eignarhaldsfélagsins Samsonar og að einstök viðskipti þess við önnur félög í eigu sömu eigenda hafi verið óeðlileg. Eignarhaldsfélagið Samson var stærsti eigandi Landsbankans. Þeir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor sonur hans segja að starfsmenn Samsonar hafi veitt skiptastjóra upplýsingar og skýringar á öllum umræddum viðskiptum sem hafi verið til umræðu í fjölmiðlum að undanförnu. Um sé að ræða ýmist fjárfestingar eða viðskiptalán til félaga í eigu sömu eigenda vegna nýrra fjárfestinga sem í flestum tilfella hafi verið í íslenskum félögum. Það sé því alrangt að nokkrir fjármunir hafi verið fluttir eða runnið til Tortola eða annarra aflandseyja. Ekkert umræddra félaga hafi átt bankareikninga utan Evrópu. Áfram sé unnið að því að aðstoða skiptastjóra við uppgjör félagsins, þar með talið að afla frekari gagna. Björgólfsfeðgar segja að þessi viðskipti hafi átt sér stað á árunum 2004 til 2007 þegar fjárhagur Samson og fyrrum eigenda hafi verið afar sterkur. Á þeim tíma hefði verið hægt að greiða út verulegar fjárhæðir í arð til fyrrum eigenda, margfaldar þær fjárhæðir sem hér um ræði. Það hafi ekki verið gert og fjármunir félagsins þess í stað verið nýttir til nýrra fjárfestinga sem ætlað var að styrkja félagið. Björgólfsfeðgar segja jafnframt að í ársreikningum Samsonar sé gerð grein fyrir þessum viðskiptum og engu haldið undan. Ársreikningarnir séu endurskoðaðir og hafi um langt skeið verið opinberir og birtir í Kauphöll Íslands. Enginn fótur sé því fyrir ályktunum um að fjármunum Samson hafi verið komið undan í skjól eða runnið til eigenda félagsins. Í öllum tilfellum hafi verið um að ræða fjárfestingar eða viðskiptalán vegna nýrra fjárfestingaverkefna.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Sjá meira