Átti að vera tímabundið lán 19. apríl 2010 03:15 Fjármálakreppan olli því að Landsbankinn sat uppi með milljarðalán til Nordic Partners vegna kaupa á danskri hótelkeðju. Fréttablaðið/teitur
Landsbankinn lánaði Nordic Partners 65,5 milljarða króna frá byrjun árs 2007 fram til loka september 2008. Þetta er 508 prósenta aukning á tæplega tveggja ára tímabili. Nordic Partners skuldaði bankanum 78,5 milljarða í bankahruninu. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að lánin hafi verið að mestu vegna kaupa á hótelkeðju í Danmörku, þar á meðal D'Angleterre-hótelinu haustið 2007, og kaupa á matvælafyrirtækinu Hamé í Tékklandi í ársbyrjun 2008. Landsbankinn var nær eini lánardrottinn Nordic Partners en heildarskuldir félagsins námu í kringum hundrað milljarða króna. Rannsóknarnefndin segir lánanefnd bankans hafa verið tilbúna til að taka þónokkra áhættu með veitingu láns upp á 12,1 milljarð króna til félagsins, sem var umfram verðmat á hótelunum. Lánið átti að vera tímabundið, eða þar til Royal Bank of Scotland endurfjármagnaði það. Það gekk ekki í gegn vegna kreppunnar. Athafnamaðurinn Gísli Reynisson stýrði Nordic Partners frá upphafi. Þegar hann lést í fyrravor flosnaði félagið upp og hefur skilanefnd Landsbankans unnið að því að taka hótelin yfir ásamt einkaþotuleigu félagsins. Aðrar eignir félagsins hafa skipt um hendur.- jab
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sjá meira