AGS: Afnám gjaldeyrishafta ekki á dagskrá í bráð 19. apríl 2010 11:26
Í fréttatilkynningu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) sendi út í kjölfar endurskoðunarinnar segir að í ljósi þess hversu óljóst sé hvenær lán frá Norðurlöndunum og Póllandi berist verði frekari afnám hafta á útflæði fjármagns að bíða enn um sinn.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að eftir sem áður ríkir því óvissa um hvenær næstu skref verða stigin í afnámi gjaldeyrishafta en eins og kunnugt er hafa bæði Seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri Seðlabanka Íslands lagt mikla áhersla á afnám hafta að undanförnu. Mögulegur líftími haftanna er reyndar alltaf að lengjast, en í fréttatilkynningunni kemur fram að efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda hafi nú verið framlengd til ágústloka 2011.Samkvæmt áætlun AGS, Seðlabankans og íslenskra stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta mun afléttingin fara fram í þremur þrepum og á síðasta skrefinu að vera lokið áður en áætlun AGS og stjórnvalda lýkur.Á síðasta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans kom það fram að ráðlegra væri að hafa vexti bankans í hærri kantinum þegar næstu skref verða stigin í afnámi haftanna. Því er ljóst að það svigrúm sem Seðlabankinn hefur til að lækka vexti takmarkast nokkuð af þeim takti sem verður í áætlun um frekari afnám hafta. Í fréttatilkynningu AGS segir jafnframt að áherslan í peningamálum er enn á gengisstöðugleika og að meiri áhersla verði lögð á að styrkja gjaldeyrisvaraforðann nú en áður til að geta mætt auknum þrýstingi til veikingar krónunnar ef til þess komi.Seinna í þessari viku kemur út ítarleg skýrsla sendinefndar AGS til Íslands sem gefin er út í tengslum við aðra endurskoðun, og athyglisvert verður að sjá hvort farið verði nánar út í þessa sálma í þeirri skýrslu, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira