Heildarútlán ÍLS lækkuðu um 14% í desember 12. janúar 2010 09:33
Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) tæpum 2,1 milljarði króna í desember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 600 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 14% frá fyrra mánuði.Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu ÍLS. Þar segir að meðalútlán almennra lána voru um 8,8 milljónir króna í desember sem er lækkun um 2% frá fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins námu rétt rúmum 30 milljörðum króna á árinu 2009 samanborið við rúma 64 milljarða króna á árinu 2008 en það samsvarar 48% samdrætti milli ára.Á fjórða ársfjórðungi 2009 bárust 835 umsóknir vegna greiðsluerfileika sem eru um 27% fleiri umsóknir en á þriðja ársfjórðungi. Á árinu 2009 bárust 3.320 slíkar umsóknir, eða um 42% fleiri umsóknir en á árinu 2008. Úrræði vegna greiðsluvanda eru samningar, skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum, lenging lána og greiðslujöfnun. Í árslok 2009 höfðu um 41 þúsund lán verið greiðslujöfnuð sem samsvarar til um 50% af útlánasafni sjóðsins.Heildarvelta íbúðabréfa í desember nam tæpum 65 milljörðum króna en það er um 19% meiri velta en í fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nam rúmum 928 milljörðum á árinu 2009 en til samanburðar nam veltan á árinu 2008 um 2.379 milljörðum króna. . Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækkaði frá byrjun árs til loka árs 2009 um 29 til 123 punkta eftir flokkum.Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 9,4 milljörðum króna í desember og voru afborganir að mestum hluta vegna íbúðabréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í desember námu um 1,1 milljarði króna. Heildargreiðslur allra lána ÍLS eru því um 9,4 milljarðar kr. á árinu 2009.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira