Bankarnir fá ókeypis ríkisábyrgð Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 20. júlí 2010 18:30
Bankarnir greiða ekkert fyrir ótakmarkaða ríkisábyrgð á innstæðum. Yrði slíkt gjald innheimt gæti það skilað milljörðum króna á ári í ríkiskassann. Þegar ríkissjóður veitir ríkisábyrgð á lánum greiða þeir sem taka lánin þóknun fyrir ábyrgðina eða svokallað ábyrgðagjald. Gjaldið hefur verið 0,25 - 0,4 % af höfuðstól ábyrgðarskuldbindingar fyrir hvert ár lánstímans. Landsvirkjun greiðir t.a.m. árlega um 900 milljónir króna fyrir ríkisábyrgðina. Í ríkisábyrgðum er ekki gert ráð fyrir innstæðum í íslenskum bönkum sem njóta ríkisábyrgðar samkvæmt yfirlýsingu núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar. Sú ríkisábyrgð hefur þó aldrei verið lögfest. Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, staðfesti í samtali við fréttastofu að ríkissjóður væri ekki að innheimta neitt ábyrgðagjald af bönkunum, til þess þyrfti lagasetningu. Þetta þýðir að viðskiptabankarnir, sem eru að mestu í eigu erlendra kröfuhafa, hafa ekki greitt neina þóknun fyrir ríkisábyrgð á öllum innstæðum. Hefði íslenska ríkið innheimt ábyrgðagjaldið mætti gera ráð fyrir að um átta milljarðar íslenskra króna hefðu skilað sér í ríkissjóð á þeim tæpu tveimur árum sem ábyrgðin hefur verið í gildi, en innistæður landsmanna nema vel á annað þúsund milljarða króna. Tryggingasjóður innstæðueigenda hefur þó innheimt gjald frá bönkunum til að tryggja innstæður að hámarki rúmra þriggja milljóna króna. Framlag bankanna á síðasta ári í sjóðinn nam um tveimur milljörðum króna. Það fé rennur ekki í ríkissjóð, heldur til tryggingar á innstæðum í gömlu bönkunum sem nú eru gjaldþrota. Alþingi hefur ekki afgreitt frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra sem gerir ráð fyrir að auka það gjald sem bankarnir greiða í Tryggingasjóð. Samkvæmt því verða innstæður þá tryggðar að hámarki 8 milljóna króna. Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vegna málsins í dag.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira