SA vill að breyting á tekjuskattslögum falli niður 27. október 2010 13:59
Samtök atvinnulífsins(SA) vilja að breyting á tekjuskattslögum sem gerðar voru í árslok í fyrra verði felldar niður. SA segir að breyting hafi óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en mun án efa draga úr vilja erlendra aðila til þess að koma með fjármagn til Íslands. Fjallað er um málið á vefsíðu SA. Þar segir að miklu skipti að íslensk skattalöggjöf hvetji til fjárfestinga erlendra aðila. Breytingar á tekjuskattslögum í lok árs 2009 hafa virkað þveröfugt. Ein breytingin felur í sér að skattandlag erlendra lögaðila verður ekki lengur tekjuskattstofn heldur tekjur. Tekjur erlendra aðila af t.a.m. vöxtum eru nú skattlagðar brúttó en ekki nettó eins og áður. Þessi breyting hefur gert Ísland að enn verri fjárfestingarkosti en þegar var orðið. Tekjur þessara aðila eru margskattlagðar, á meðan innlendir aðilar njóta sama fyrirkomulags og gilti áður. Samtök atvinnulífsins leggja því eindregið til að fallið verði frá þessari breytingu. Rökstuðningur fjármálaráðuneytis með ofangreindri breytingu var sá auðveldara yrði að sjá hvaða skatthlutfall er í gildi fyrir þá aðila sem bera hér á landi takmarkaða skattskyldu. Þetta var sagt einföldun og hagræði jafnt fyrir skattyfirvöld og aðila með takmarkaða skattskyldu sem standa þurfa skil á staðgreiðslu vegna tekna. Þessi breyting hefur óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en mun án efa draga úr vilja erlendra aðila til þess að koma með fjármagn til Íslands. Lagaákvæðið felur í sér að erlendir aðilar verða í einhverjum tilvikum skattlagðir þyngra en innlendir aðilar, þar sem þeir innlendu geta dregið kostnað frá við afmörkun skattstofns á meðan girt er fyrir það þegar erlendir aðilar eiga í hlut. Þegar erlendir aðilar þurfa að greiða afdráttarskatta af brúttó tekjum sínum en innlendir aðilar af nettó leiðir það yfirleitt til hærri skattlagningar hinna erlendu aðila. Með þessu er verið að mismuna aðilum heimilisföstum á Íslandi og erlendum aðilum en það er óheimilt samkvæmt EES-samningnum. Evrópudómstóllinn hefur í fjölda mála úrskurðað að mismunun eins og lýst er hér að ofan fáist ekki staðist. Þá hefur Evrópudómstólinn komist að þeirri niðurstöðu að gjöld sem tengd eru við tekjuöflun erlendra aðila í upprunaríki eigi að vera frádráttarbær í því ríki. Skiptir þá ekki máli hvar og hvenær slík gjöld hafa fallið til. Höfði erlendur aðili mál gegn íslenska ríkinu vegna ofangreindra brota á samningsskuldbindingum Íslands er næsta víst að slíkt myndi leiða til bótaskyldu fyrir íslenska ríkið. Í kjölfarið yrði að breyta ákvæðinu með lögum.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Framleiðendur verða að vera á tánum Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira