Lög hindruðu lífeyrissjóði í upprunalegum tillögum 3. desember 2010 12:00
Lög heimila lífeyrissjóðum alls ekki að samþykkja upphaflegar hugmyndir stjórnvalda um að fella niður skuldir sjóðfélaga, að gefa með öðrum orðum eftir innheimtanlegar kröfur að óbreyttum lögum.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lífeyrissjóðunum vegna viljayfirlýsingar um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Landssamtök lífeyrissjóða fagna þeim skrefum sem stigin eru með fyrirliggjandi viljayfirlýsingu en minna jafnframt á að hver og einn lífeyrissjóður á að sjálfsögðu síðasta orðið um aðild sína að samkomulagi sem gert verður á grundvelli yfirlýsingarinnar. Miðað er við að formsatriðum samkomulagsins ljúki fyrir miðjan desember og að því búnu taki hver lífeyrissjóður afstöðu til þess.Í tilkynningunni segir m.a. að í opinberri umræðu í aðdraganda fyrirliggjandi viljayfirlýsingar hefur mátt sjá og heyra að það hafi „strandað á lífeyrissjóðum" að áfangi dagsins náðist ekki fyrr en raun ber vitni. Þetta má til sanns vegar færa í ákveðnum skilningi en skýrist af þeirri einföldu staðreynd að lífeyrissjóðir eru eign sjóðfélaga, hvort sem þeir skulda mikið, lítið eða ekki neitt.Stjórnum og stjórnendum sjóðanna ber að gæta hagsmuna sjóðfélaga sinna og umfram allt að virða lög. Það er einmitt kjarni máls hvað varðar meintar tafir af völdum Lífeyrissjóða í aðdraganda viljayfirlýsingarinnar.Lög heimila lífeyrissjóðum alls ekki að samþykkja upphaflegar hugmyndir stjórnvalda um að fella niður skuldir sjóðfélaga, að gefa með öðrum orðum eftir innheimtanlegar kröfur að óbreyttum lögum.Stjórnarmenn lífeyrissjóða gætu bakað sér ábyrgð með því að mismuna umbjóðendum sínum á þann hátt að skuldlausir sjóðfélagar þyrftu að taka á sig skerðingu lífeyrisréttinda í þágu skuldugra sjóðfélaga í sama lífeyrissjóði.Aðgerðir í þágu skuldugra, eins og gert er nú ráð fyrir þeim í viljayfirlýsingunni, standast lög og kalla ekki á skerðingu lífeyrisréttinda sjóðfélaga. Fulltrúar lífeyrissjóða vildu fá vissu fyrir því að þeim væri fært að samþykkja aðild að viljayfirlýsingunni í núverandi mynd. Slíka staðfestingu fengu þeir fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu síðastliðinn miðvikudag, 1. desember.Miðað er við að formsatriðum samkomulagsins ljúki fyrir miðjan desember og að því búnu taki hver lífeyrissjóður afstöðu til þess.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira