Umtalsverð veltuaukning á íbúðamarkaðinum í haust 3. desember 2010 12:37
Veltan á íbúðamarkaði hefur aukist umtalsvert undanfarið. Gerðir voru 281 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nóvembermánuði samanborið við 207 samninga í sama mánuði í fyrra og hefur veltan því aukist um 36% milli ára. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heildarveltan í nóvember nam 7,4 milljörðum kr. og var því meðalupphæð hvers samnings sem gerður var í nóvember 26,4 milljónir kr. Endurspeglar það að veltan var langmest með íbúðir í fjölbýli. Veltan á íbúðamarkaði hefur verið lífleg á haustmánuðum sem virðist benda til þess að botninum sé náð á íbúðamarkaði og ekki sé langt í að viðsnúningur náist. Metvelta frá hruni var í septembermánuði síðastliðnum þegar kaupsamningar voru 347 talsins. Þá voru samningar í október 296 talsins sem var aukning um 40% frá sama mánuði fyrra árs. Samanlögð velta síðustu þriggja mánaða nam 924 samningum sem er aukning um 43% frá sama tímabili fyrra árs. Samhliða þessari aukningu í veltu hefur verð á íbúðum verið að hækka en samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur íbúðaverð á landinu öllu hækkað um 1,1% undanfarna 3 mánuði. Greiningin telur að ástæða uppsveiflunnar á fasteignamarkaðinum sé vegna þess hve fáir fjárfestingarkostir eru í boði. Því séu fjársterkir aðilar að koma inn á íbúðamarkaðinn. „Það sem rennir frekari stoðum undir þá kenningu að það séu fjársterkir aðilar sem leiti inn á íbúðamarkaðinn núna í leit að arðsemi og eignadreifingu er að makaskiptasamningum hefur fækkað verulega upp á síðkastið," segir í Morgunkorninu. „Í nóvember síðastliðnum var hlutafall makaskiptasamninga aðeins 9% en var 30% fyrir ári síðan. Með makaskiptasamningum er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Makaskiptasamningar hafa verið mjög algengir í íbúðaviðskiptum frá hruni en undanfarin misseri hefur nánast þriðjungur heildarviðskipta með íbúðir verið afgreidd með makaskiptasamningum þar til nú þegar aftur hefur dregið úr tíðni makaskiptasamninga."
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira