Félag í eigu FL Group sakað um aðild að fjársvikum 14. október 2010 09:13 FL Group var heldur umsvifamikið þegar best gekk.
Fyrrverandi fjármálastjóri bandaríska fasteignafyrirtæksins Bayrock, er í máli við félagið, meðal annars vegna þess að hann telur að það hafi skotið undan láni sem fyrirtæki tengt FL Group veitti því. Um er að ræða 50 milljón dollara lán sem félagið FLG Property, sem var í eigu FL Group veitti Bayrock árið 2007. Ástæðan fyrir því að starfsmaðurinn, sem heitir Jody Kriss, er ósáttur, er vegna þess að svo virðist sem hluti af láninu hafi farið persónulega í hendur eiganda Bayrock-félagsins, Tevfik Arif, auk annars stjórnanda. Tevfik var handtekinn í Tyrklandi grunaður um að tengjast vændisskútu fyrir tveimur vikum síðan. Lögreglan fór um borð í skútuna á þyrlum með sérsveitarmönnum. Fjölmargir kúnnar og vændiskonur fundust um borð í skútunni. Farið kostaði á milli þrjú þúsund og tíu þúsund dollara. Þá fundust stúlkur undir aldri sem þar stunduðu vændi. Sjálfur segir Arif að um ófrægingaherferð sé að ræða og að hann tengist málinu ekki á nokkurn hátt. Þá hafa erlendir fjölmiðlar greint frá því að Bayrock átti í miklum viðskiptum við aukýfinginn Donald Trump. Í Morgunblaðinu í dag er skrifað um málið en þar segir að lögmenn Kriss haldi því fram að stjórnendur FLG Propertys, hafi verið meðvitaðir um að fénu hafi verið ráðstafað með dularfullum hætti. Lögmenn Judys vilja meðal annars meina að FLG Property hafi setið báðu megin við borðið fyrir utan að fjárfesting félagsins hafi verið skráð sem lán til dótturfélaga Bayrock sem þykir bera vitni um að vitneskju félagsins um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað.
Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Viðskipti innlent Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira