Tapa gríðarlegum fjármunum 22. júní 2010 18:55
Hætt er við því að eigendur fjármögnunarfyrirtækjanna, sem í mörgum tilvikum eru erlendir kröfuhafar, muni tapa gríðarlegum fjármunum ef uppgjör gengistryggðra lána fer fram í samræmi við niðurstöðu Hæstaréttar í bílalánsmálunum. Eftir bankahrunið hafa orðið nokkrar sviptingar á eignarhaldi stærstu fjármögnunarfyrirtækja á Íslandi. Þau fyrirtæki sem voru einna stórtækust í að veita slík lán voru fyrirtæki eins og Lýsing, SP-Fjármögnun og Avant auk stóru viðskiptabankanna þriggja. Hæstiréttur vék sem kunnugt er til hliðar ákvæði um gengistryggingu í bílalánsamálunum og því þarf uppgjör lánasamninga þessara fyrirtækja að grundvallast á því. En hverjir eru það sem bera tjónið vegna tapsins sem fyrirtækin verða fyrir vegna þessa? Í tilviki SP-Fjármögnunar er það ríkisbankinn Landsbankinn, en í mars á síðasta ári eignaðist bankinn fyrirtækið að fullu eftir að hafa átt fimmtíu og eins prósents hlut um árabil. Lýsing hefur undanfarin ár verið í eigu Exista sem leitaði í vor eftir nauðasamningum sem eru ófrágengnir, en Lýsing er að fullu veðsett helsta lánardrottni sínum, þýska bankanum Deutsche Bank. Þjóðverjarnir gáfu það út nýlega að þeir færu líklega í skaðabótamál við ríkið af Avant var undir Moderna Finance sem var í eigu fjárfestingarfélagsins Milestone. Eftir þrot þess er Avant að fullu í eigu skilanefndar Glitnis sem er í eigu erlendra kröfuhafa. Auk þessara fyrirtækja veittu stóru viðskiptabankarnir gengistryggð lán, en Íslandsbanki er nú í eigu erlendra kröfuhafa sem eiga 95 prósenta hlut í bankanum í gegnum eignarhaldsfélag skilanefndar Glitnis og Arion banki einnig þar sem skilanefnd Kaupþings fer með 87 prósenta hlut. Þá er Landsbankinn að fullu í eigu ríkisins og ber því ríkissjóður tjónið vegna lána sem bankinn veitti.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira