Viðskipti innlent

Sprenging í fjölda samlagsfélaga á þessu ári

Frá áramótum talið hafa verið stofnuð alls 245 samlagsfélög samanborið við 22 slík félög á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjar tölur um gjaldþrot og nýskráningar sem Hagstofan birti nú í morgun.

Í Morgunkorninu segir um þróun samlagsfélaga að þeim hefur fjölgað verulega á árinu miðað við síðustu ár. Þannig voru alls 40 skráð samlagsfélög í apríl en á sama tíma fyrir ári voru þau 6 og þegar litið er tvö ár aftur í tímann voru þau einungis 4.

„Ástæða þess að samlagsfélögum fjölgar svo mikið nú er líklega viðbrögð við breyttu skattaumhverfi, en skattlagning samlagsfélaga er hagstæðari en gerist í einkahlutafélögum," segir í Morgunkorninu.

„Samlagsfélag er blanda af sameignarfélagi og hlutafélagi þar sem að minnsta kosti einn aðili ber ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félags en aðrir geta borið takmarkaða ábyrgð miðað við tiltekna fjárhæð eða hlutfall."

Til samanburðar má nefna að í apríl síðastliðnum voru 119 ný einkahlutafélög skráð samanborið við 189 í apríl 2009. Þetta jafngildir rúmlega 37% fækkun milli ára. Frá áramótum talið hefur þeim því fækkað um þriðjung frá sama tímabili í fyrra en alls hafa 588 einkahlutafélög verið skráð á tímabilinu samanborið við 879 einkahlutafélög í fyrra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×