Samorka óttast spekileka í jarðhitanýtingu 7. september 2010 11:46 Jarðhitanýting. Mynd úr safni.
Stjórn Samorku lýsir verulegum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin vegna tafa á verkefnum í jarðhitanýtingu hérlendis. Í tilkynningu frá Samorku segir að á örfáum misserum hafi orðið gríðarlegur tekjusamdráttur hjá lykilþjónustuaðilum orkufyrirtækja á borð við Jarðboranir, ÍSOR-Íslenskar orkurannsóknir og verkfræðistofurnar. Þá segir ennfremur í tilkynningunni að miklum fjölda sérhæfðs starfsfólks hafi verið sagt upp störfum eða það horfið til verkefna erlendis. „Á sama hátt er verið að undirbúa flutning jarðhitabora úr landi. Þessar tafir geta aðeins leitt til þess að sérþekking í rannsóknum og orkunýtingu hérlendis glatast, sem hefur í för með sér að í framtíðinni verða framkvæmdir dýrari og flóknari en ella og verulega mun draga úr nauðsynlegum rannsóknum og þróun á jarðhitakerfum landsins," segir í tilkynningunni. Orðrétt segir svo: „Þessi þróun mun ennfremur hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir almennt viðhald á jarðhitamannvirkjum í rekstri, og hefur ekki síður alvarlegar afleiðingar fyrir rekstur og öryggismál þeirra virkjana og hitaveitna sem starfandi eru. Sérhæfðan búnað og starfsfólk hefur þurft og mun í framtíðinni þurfa að kalla til með stuttum fyrirvara til að lagfæra og eða hemja jarðhitaholur vegna bilana, útfellinga eða óvæntra atburða á borð við jarðskjálfta. Án teljandi verkefna á sviði nýframkvæmda er hins vegar erfitt ef ekki ómögulegt að halda hér úti slíkri viðbúnaðargetu. Til að tryggja áfram aðgengi að þeirri sérhæfðu þjónustu sem jarðhitanýting þarf á að halda hvetur stjórn Samorku stjórnvöld og aðra hlutaðeigandi til að greiða götu þeirra arðbæru verkefna sem íslensk orkufyrirtæki hafa verið með í undirbúningi svo þau komist til framkvæmda sem fyrst."
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Sjá meira