Fleira en samspil gjaldmiðla skapar jarðveg fyrir kreppu 8. október 2010 05:00 Í Seðlabankanum Már Guðmundsson og Zhou Xiaochuan, sem Már segir að sé valdamesti seðlabankastjóri sem sótt hefur landið heim síðan Paul Walker kom hingað í veiði í tíð Jóhannesar Nordal. Fréttablaðið/Anton
Horfa þarf til fleiri þátta en gengis gjaldmiðla til að tryggja að ekki verði til jarðvegur fyrir aðra fjármálakreppu á borð við þá sem reið yfir heiminn 2008 og 2009. Þetta kom fram í máli Zhou Xiaochuan, seðlabankastjóra Kína, sem var í heimsókn hér á landi í gær. Zhou Xiaochuan kom til landsins á miðvikudag en hélt í gær til Bandaríkjanna á ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Auk þess að funda með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra hitti hann fjármálaráðherra landsins og efnahags- og viðskiptaráðherra áður en hann fór. Á stuttum fundi í Seðlabanka Íslands lýsti seðlabankastjórinn þeim breytingum sem orðið hafa síðustu ár á áherslum í efnahagsstjórn Kína og viðhorfi til samstarfs við önnur ríki. Hann segir skipta máli að seðlabankar og ríki heims taki höndum saman í að koma á breytingum sem tryggi stöðugleika. Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóri AGS, kallaði, í viðtali við Le Monde í gær, eftir hraðari styrkingu júansins, gjaldmiðils Kína. Hann sagði veikt gengi júansins uppsprettu skaðlegrar spennu í hagkerfum heims og búa til jarðveg fyrir aðra fjármálakreppu. „Ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum heimsins á rót sína að hluta til að rekja til samspils gjaldmiðla, þótt þar skipti aðrir þættir einnig máli,“ sagði Zhou Xiaochuan og benti á að síðustu ár hafi verið afgangur á viðskiptum Kína við útlönd en margvíslegar aðgerðir miði að því að viðhalda vexti um leið og dregið verði til muna úr þeim afgangi. Kína eigi líka hagsmuni af því að tryggja og viðhalda heilbrigðum hagvexti á heimsvísu. „Við reynum að leiðrétta ójafnvægi þar sem það hefur orðið til, en teljum að horfa þurfi til fleiri þátta en gengis gjaldmiðilsins.“ Í inngangsorðum sínum sagði Zhou Xiaochuan að kínverska hagkerfið hafi líka orðið fyrir alvarlegum neikvæðum áhrifum af fjármálakreppunni 2008 og 2009. Það hafi kallað á skjót viðbrögð bankans og breytingar á peningastefnu hans. „Við erum nú á batavegi, jafnvel þótt ójöfnur kunni að vera á þeim vegi og hægt sé farið yfir,“ sagði hann og kvað viðunandi vöxt í augsýn á ný. Seðlabankastjórinn kínverski kvað Seðlabanka Kína ekki hafa kannað sérstaklega kaup á íslenskum ríkisskuldabréfum, en kvaðst telja að sambærileg áhrif fengjust fram með gjaldeyrisskiptasamningi þeim sem undirritaður var milli Seðlabanka Íslands og Kína í sumar. Hann ýti jafnframt undir áhuga kínverskra fjárfesta á Íslandi. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira