Greining Arion banka spáir verðhjöðnun í júní 24. júní 2010 06:50
Greining Arion banka spáir verðhjöðnun í júní. Samkvæmt nýrri spá greiningarinnar mun vísitala neysluverðs lækka um 0,2% í júní. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Samkvæmt spánni mun 12 mánaða verðbólga mælast 5,8% í þessum mánuði samanborið við 7,5% í maí. Mikil lækkun eldsneytisverðs í mánuðinum ræður mestu um lækkunina, en þó er einnig útlit fyrir að fleiri þættir, svo sem matvara og nýir bílar vegi til lækkunar. Verðhjöðnun er nær óþekkt fyrirbirgði í íslensku efnahagslífi undanfarna áratugi. Mestu áhrifin til lækkunar eru vegna eldsneytislækkunar sem gæti lækkað vísitöluna um u.þ.b. 0,3%. Greining gerir enn fremur ráð fyrir að lækkun matvöruverðs muni hafa u.þ.b. 0,2% áhrif til lækkunar. Einnig er gert ráð fyrir að verðlækkun á nýjum bílum lækki vísitöluna um u.þ.b. 0,2%. Samanlagt munu lækkanir á eldsneyti, matvöru og bílum leiða til 0,7% lækkunar vísitölunnar að mati greiningarinnar. Í Markaðspunktunum segir að gangi þessar forsendur eftir þyrftu aðrir liðir vísitölunnar að hækka ansi mikið ef niðurstaðan þennan mánuðinn ætti að vera yfir núllinu. Að sama skapi gæti verðhjöðnunin allt eins orðið meiri en spáin segir til um ef aðrir liðir vísitölunnar verða spakir að þessu sinni. „Líkt og mánuðinn á undan gerum við ráð fyrir að ýmsir liðir hafi smávægileg áhrif til hækkunar vísitölunnar í júní. Þar má t.d. nefna árstíðabundnar hækkarnir sem tengjast sumarvarningi. Þessi áhrif komu raunar að einhverju leyti fram í maí sl. en við gerum ráð fyrir að þessi áhrif megi einnig merkja í júní," segir í Markaðspunktunum. „Spá okkar miðast við 0,1% áhrif húsnæðisverðs til hækkunar á vísitöluna en raunin gæti þó orðið einhver allt önnur, enda er erfitt að spá fyrir um mánaðarlegar breytingar á þessum lið. Vísitala íbúðaverðs hjá Fasteignamatinu hækkaði töluvert í síðustu mælingu eða um 1,9% sem gæti verið vísbending um einhver hækkunaráhrif húsnæðisliðarins."
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa fækkar starfsmönnum um sautján Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira