Engar upplýsingar að hafa hjá fjármálaráðherra 24. júní 2010 10:12
Engar upplýsingar liggja fyrir um hvert sé áætlað umfang afleiðu- og gjaldmiðlasamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur á Alþingi um rannsókn skattrannsóknarstjóra ríkisins á stórfelldu skattundanskoti.„Umbeðnar upplýsingar um áætlað umfang afleiðu- og gjaldmiðlasamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja liggja hvorki fyrir hjá fjármálaráðuneyti né skattrannsóknarstjóra, eða hjá öðrum opinberum aðila eftir því sem næst verður komist," segir í svari ráðherra.„Við vinnu starfshóps á vegum skattyfirvalda sem settur var á fót í októbermánuði 2009 var aftur á móti aflað upplýsinga um afleiðuviðskipti á árunum 2006 til og með 2008 með milligöngu banka og fjármálastofnana, þar á meðal starfsmanna, tengdra aðila og annarra viðskiptamanna þeirra. Þá var jafnframt skoðað hvort haldið hefði verið eftir fjármagnstekjuskatti af hugsanlegum hagnaði viðskiptamanna líkt og lögboðið er.Í ljós hefur komið að bankar og fjármálastofnanir stóðu skattyfirvöldum ekki skil á staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts af þeim hagnaði, þó að undanskildum einum banka að því er varðar staðgreiðslu af ákveðinni tegund afleiðuviðskipta. Jafnframt liggur fyrir að margir viðskiptavinir bankanna létu hjá líða að gera skattyfirvöldum grein fyrir umræddum viðskiptum á skattframtölum sínum og virðist hagnaður vegna þessa því að mestu leyti vera óskattlagður.Frekari úrvinnsla gagna stendur yfir hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins um þessar mundir. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvert er umfang skattundanskota vegna þessa í krónum talið en ljóst þykir að um verulegar fjárhæðir sé að ræða."Samskonar upplýsingaskort er að finna í svar fjármálaráðherra um hvert er áætlað umfang kaupréttarsamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja? „Umbeðnar upplýsingar um áætlað umfang kaupréttarsamninga á íslenskum bankamarkaði frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja liggja hvorki fyrir hjá fjármálaráðuneyti né skattrannsóknarstjóra, eða hjá öðrum opinberum aðila eftir því sem næst verður komist. Í þessu sambandi er þó rétt að nefna að staðgreiðslu- eða skattskil vegna kaupréttarsamninga virðast hafa verið í betra lagi en í tilviki afleiðu- og gjaldmiðlasamninga," segir í því svari.Og sama staða er uppi hvað varðar spurningu Eyglóar um hvert sé áætlað umfang niðurfellingar ábyrgða og afskrifta lána til fyrrum starfsmanna og stjórnenda fjármálafyrirtækja frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja? „Umbeðnar upplýsingar um áætlað umfang niðurfellingar ábyrgða og afskrfta lána til fyrrum starfsmanna og stjórnenda fjármálafyrirtækja frá einkavæðingu ríkisbankanna tveggja liggja hvorki fyrir hjá fjármálaráðuneyti né skattrannsóknarstjóra, eða hjá öðrum opinberum aðila eftir því sem næst verður komist," segir í svari ráðherra.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira