Hagnaður Hampiðjunnar hálfur milljarður í fyrra 21. mars 2010 06:58
Hagnaður Hampiðjunnar eftir skatta á síðasta ári nam 520 milljónum kr. Til samanburðar nam hagnaðurinn 120 milljónum kr. árið 2008. Í tilkynningu um uppgjörið segir að rekstrartekjur Hampiðju samstæðunnar voru kr. 6,6 milljarðar kr. og jukust í krónum talið um 27% á milli ára. Rekstrartekjur drógust saman í evrum um 5% frá fyrra ári sem skýrist af innlendri sölu móðurfélagsins, sem mælist í færri evrum vegna gengisfalls krónunnar. Heildareignir voru um 13,5 milljarðar kr. í árslok. Skuldir námu um 7 milljörðum kr. og lækkuðu um 172 milljónir kr. frá fyrra ári. Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin með eigin fé, var í árslok 48% af heildareignum samstæðunnar. „Reksturinn gekk ágætlega á síðasta ári. Rekstrarhagræðingin, sem unnið hefur verið að á síðustu árum í framleiðslu á garni, netum og köðlum, m.a. með kaupum á fyrirtækinu Utzon í Litháen og flutningi á starfsemi frá Íslandi og Portúgal til þess félags, hefur bætt samkeppnisstöðu samstæðunnar verulega eins og ársreikningurinn ber með sér," segir Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar í tilkynningunni. „Þá var á árinu unnið mikið starf í vöruþróun, bæði í köðlum í veiðarfæri, köðlum úr ofurefnum til ýmissa nota og á toghlerum. Í samræmi við stefnu Hampiðjunnar, hefur verið sótt um einkaleyfi á áhugaverðum vörunýjungum Hampiðjunnar. Hampiðjan mun halda áfram að verja þróunarstarf sitt með umsóknum um einkaleyfi og er einbeitt í því að verja útgefin einkaleyfi fyrir brotum samkeppnisaðila."
Mest lesið Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Viðskipti innlent „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Birgir til Banana Viðskipti innlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Fleiri fréttir Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri Sjá meira