Listaháskólinn enn í biðstöðu í borginni 3. mars 2010 06:00 Sveinn Björnsson
Áætlanir eru enn á teikniborðinu um að reisa 14.000 fermetra hús yfir Listaháskóla Íslands á mótum Laugavegar, Frakkastígs og Hverfisgötu og verslana- og þjónustukjarna ofar við Laugaveginn. Sveinn Björnssonar, framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Cube Properties, sem á meirihluta fasteigna og lóða á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði, segir efnahagsástandið setja strik í reikninginn. „Plönin eru óbreytt. Þau hafa aðeins verið færð til á meðan beðið er eftir því að málin skýrist í efnahagsóreiðunni. Á meðan leigjum við fasteignirnar út og sjáum til þess að þær standi undir sér," segir hann. Nokkuð umdeild vinningstillaga að byggingu Listaháskólans var lögð fram haustið 2008. Samkvæmt henni mun götumyndin halda sér að hluta og byggja á bak við og á milli þeirra húsa sem fyrir eru. Laugaveg 45 á að færa að 41. Þriðjungur nýja hússins á að vera neðanjarðar. Samkvæmt fyrri áætlunum mun Cube Properties fjármagna byggingu hússins og eiga það en leigja skólanum. Verkefnið er ekki komið á það stig að hægt sé að sækja um lánsfjármagn fyrir framkvæmdina, að sögn Sveins. Áætlanir um verslanamiðstöðina eru komnar skemur á veg. Fyrirhugað var að hún næði frá horni Laugavegar 65 að Laugavegi 71 og langleiðina niður að Skúlagötu. Sveinn segir miðstöðina verða minni í sniðum en upphaflega var stefnt að. Sveinn segir Cube Properties tilbúið til framkvæmda þegar stjórnvöld gefi græna ljósið. Þangað til sé allt á bið. „Við verðum fasteignaleiga þar til málin fara að þokast," segir hann. Ekki er stefnt að sölu eigna þótt áætlanir hafi breyst. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira