Viðskipti innlent

Marel veitir hópi starfsmanna kaupréttarsamninga

Stjórn Marel hf. ákvað á fundi sínum í dag að veita hópi starfsmanna sinna kaupréttarsamninga í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel þann 3. mars 2010.

Í tilkynningu segir að heildarfjöldi hluta sem veittir eru kaupréttir að, samkvæmt samningum þessum, eru samtals 18.200.000. Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Hluti af samningum eru við meðlimi framkvæmdastjórnar félagsins, þá Theo Hoen, forstjóra, Erik Kaman, fjármálastjóra og Sigstein Grétarsson, forstjóra Marel á Íslandi, og veitir þeim kauprétt að hlutum sem greinir hér að neðan (auk heildarfjölda hluta í eigu framangreindra aðila og aðila sem eru fjárhagslega tengdir þeim):

Theo Hoen

Nýr kaupréttur: 350.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 2.000.000 Bein eign að nafnverði: 1.500.000 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0

Erik Kaman

Nýr kaupréttur: 350.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 1.500.000 Bein eign að nafnverði: 1.675.000 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0

Sigsteinn Grétarsson

Nýr kaupréttur: 350.000. Eldri ónýttir kaupréttir: 1.000.000 Bein eign að nafnverði: 25.997 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0

Samningarnir veita rétt til kaupa á hlutum í Marel hf. á genginu 0,525 evrur á hlut sem ákvarðað er af lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. í dag, 10. maí 2010, þ.e. 86,30 krónur á hlut umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 164,38.

Gildistími samninganna er 5 ár, þeir munu taka gildi frá deginum í dag og falla úr gildi þann 9. maí 2015. Kaupréttir samkvæmt samningnum munu verða veittir í þrennu lagi, þannig að 50% af heildarkauprétti verða nýtanleg eftir 1. maí 2012, 25% verða nýtanleg eftir 1. maí 2013 og þau 25% sem eftir eru verða nýtanlega eftir 1. maí 2014. Kaupréttargengið mun hækka um 4% í fyrsta sinn 1. maí 2012 og síðan árlega eftir það.

Nýti starfsmaður ekki að fullu kauprétt sinn samkvæmt framangreindu innan skilgreindra nýtingatímabila mun kauprétturinn, að því marki sem hann er ónýttur, sjálfkrafa færast yfir á næsta slíkt tímabil. Hafi starfsmaður ekki nýtt kauprétt sinn áður en samningurinn fellur úr gildi, falla veittir en ónýttir kaupréttir niður.

Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum. Skilyrði fyrir nýtingu kaupréttar er að viðkomandi sé í starfi hjá Marel samstæðunni (Marel hf. eða dótturfélögum í 100% eigu Marel hf.) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt kauprétt að eru 43.815.000 eða sem nemur 3,7 milljörðum kr. samkvæmt fyrrgreindu gengi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×