Löndunarbann hefði engin áhrif 15. desember 2010 06:15 Á fundi í Brussel. Richard Benyon, sjávarútvegsráðherra Bretlands, á tali við Júlíu Damanaki, fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, áður en fundur hófst í sjávarútvegs- og landbúnaðarráði Evrópusambandsins á mánudag.nordicphotos/AFP „
Við vísum ábyrgðinni á þeirri ofveiði sem fyrirsjáanleg er á næsta ári alfarið á hendur Evrópusambandinu og Noregi,“ segir Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands í makrílviðræðum við ESB og Noreg. Tómas segir allt útlit fyrir að Ísland og Færeyjar setji sér nú einhliða kvóta, rétt eins og Norðmenn og Evrópusambandið hafa gert. „Staðan verður því áfram sú sama og verið hefur á þessu ári.“ Nú í vikunni slitnaði upp úr viðræðum ESB og Noregs við Færeyinga, rúmlega hálfum mánuði eftir að upp úr viðræðum við Íslendinga slitnaði þegar ljóst var orðið að ekkert yrði af samkomulagi. Að loknum þeim fundi sendi sjávarútvegsráðuneytið frá sér tilkynningu um að hlutdeild Íslands í kvótanum yrði óbreytt á næsta ári, eða 16 til 17 prósent af þeim 646 þúsund tonna kvóta sem vísindamenn telja ráðlegan. Norðmenn og Evrópusambandið tóku í gær þá ákvörðun að skammta sjálfum sér samtals níutíu prósent af heildarkvótanum, sem þýðir að á næsta ári verður samtals veitt töluvert umfram ráðlagðan kvóta. „Með þessu er ekkert tillit tekið til lögmætra hagsmuna Íslands og Færeyja, sem stunda lögmætar veiðar úr stofninum,“ segir Tómas. „Ekki er heldur tekið neitt tillit til Rússa, sem veiða einnig úr þessum stofni í Síldarsmugunni.“ Í gær var svo í erlendum fréttamiðlum fullyrt að Maria Damanaki, fiskveiðistjóri Evrópusambandsins, íhugaði refsiaðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum. Þær refsiaðgerðir myndu felast í löndunarbanni innan Evrópusambandsins á makríl frá þessum löndum. „Við höfum ekkert við það að athuga,“ sagði Tómas um þessar refsiaðgerðir, „enda gilda hér á landi sömu reglurnar. Samkvæmt íslenskum lögum er það þannig að við heimilum ekki löndun erlendra skipa hér á landi á afla úr deilistofnum sem ósamið er um. Þetta er því bara spegilmynd af því sem gildir hér á landi.“ Löndunarbannið myndi hvort eð er ekki hafa nein áhrif á veiðarnar hér á landi. „Menn hafa landað aflanum á Íslandi og unnið hann hér, enda hafa veiðar okkar nánast alfarið verið innan okkar lögsögu.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira