Mikil lækkun á verðbólguálagi skuldabréfa 7. júlí 2010 08:56
Þriggja ára verðbólguálag á skuldabréfum lækkað úr 4,7% í 1,25% á fyrstu 6 mánuðum ársins, en álagið hefur ekki mælst svo lágt frá árinu 2005. Greining Arion banka fjallar um málið í Markaðspunktum sínum. Þar segir að krafa óverðtryggðra bréfa er í dag á bilinu 2,8-6,2% en til samanburðar var krafa bréfanna í ársbyrjun í kringum 7,5-8 prósent. Á sama tíma hefur krafa verðtryggðra bréfa einnig lækkað en þó mun minna ef aðeins er horft til kröfubreytingar, eða um 30-40 punkta frá áramótum og eru nú í kringum 3-3,5%. „Þessi mikla kröfulækkun óverðtryggðra bréfa hefur skilað sér í hratt lækkandi verðbólguálagi (sem í grófum dráttum er mismunur á óverðtryggðri og verðtryggðri kröfu). Þannig hefur þriggja ára verðbólguálag lækkað úr 4,7% í 1,25% á fyrstu 6 mánuðum ársins, en álagið hefur ekki mælst svo lágt frá því að byrjað var að gefa út HFF bréfin árið 2005 (ef litið er framhjá hrunmánuðum september og október). Svipaða sögu má segja um verðbólguálagið til 8 ára en þar hefur álagið lækkað úr 4,2% í 2,6%, þó breytingin sé minni," segir í Markaðspunktunum. Greining veltir því fyrir sér hvort þetta lága verðbólguálag standist þegar horft fram á veginn. „ Ef við brjótum verðbólguálagið á skuldabréfamarkaði niður eftir árum þá gera fjárfestar ráð fyrir að verðbólgan verði undir eða í kringum 1,6% á næstu þremur árum," segir í Markaðspunktunum. „Eftir eins mikla verðbólgutíð og verið hefur eiga eflaust margir erfitt með að ímynda sér að verðbólgan verði undir markmiði í nokkur ár - hins vegar hefur slíkt gerst hér áður fyrr. Á tímabilinu 1994-1999 mældist meðalverðbólgan 1,6% (m.v. ársfjórðungsverðbólgu á ársgrundvelli) en á því tímabili var gengið nokkuð stöðugt. Hins vegar má velta fyrir sér hvort raunhæft sé að ætla að meðalverðbólga til næstu 8 ára verði í kringum markmið Seðlabankans (2,5%)!"
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira