Íbúðalánasjóður þarf að fá tugmilljarða á næstu árum 7. júlí 2010 06:00
Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins telur Íbúðalánasjóð þurfa allt að tuttugu milljarða króna frá ríkinu til ársins 2014 til að eiginfjárhlutfall sjóðsins verði eins og vera eigi. „Þetta verða klárlega yfir tíu milljarðar og jafnvel allt að tuttugu milljarðar sem þarf að leggja Íbúðalánasjóði til á næstu árum," segir Bolli Bollason, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu og formaður starfshópsins. Að sögn Bolla á Íbúðalánasjóður að skila Fjármálaeftirlitinu niðurstöðum á mánudag. Setja eigi fram áætlun um eiginfjárstöðu til ársins 2014. Meta þurfi útlánatap vegna bankahrunsins. „Það er ekki auðvelt að gera áætlanir um útlánatöp fram í tímann og við getum ekki nefnt heildartölu um það hvað ríkið þarf að leggja í sjóðinn. Það er hins vegar alveg augljóst að það er framundan útlánatap sem verður einhverjir milljarðar á hverju ári," segir Bolli. Mest verði tapið á þessu ári og því næsta. Uppistaðan í tapinu sé vegna greiðsluerfiðleika lántakenda. Reglur segja að stefnt skuli að fimm prósenta eiginfjárhlutfalli Íbúðalánasjóðs. Lágmarks hlutfall eiginfjár hjá bönkunum er nú sextán prósent. „Íbúðalánasjóður er í ríkisábyrgð og tryggður upp í topp. Því má rökstyðja að þar sé ekki þörf fyrir jafn hátt eiginfjárhlutfall og í almennri bankastarfsemi. En það má líka færa rök fyrir því að það eigi að vera hærra en fimm prósent. Þetta mun Fjármálaeftirlitið væntanlega vega og meta," segir Bolli. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir hins vegar að lög kveði ekki á um aðkomu Fjármálaeftirlitsins að því að ákvarða eiginfjárhlutfall Íbúðalánasjóðs. „Þetta er hálf laust í reipunum hvað varðar aðkomu okkar. Hún er allt önnur en aðkoma okkar að fjármálafyrirtækjum," segir forstjóri FME. - gar
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira