Dyrum nærri lokað á erlenda fjárfesta Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 7. júlí 2010 07:00 Svo kann að fara að lög um takmörkun á erlendra aðila hér verði endurskoðuð á haustþingi, að sögn Gylfa Magnússonar. Markaðurinn/vilhelm
Ísland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) yfir þau lönd sem hafa miklar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Mestu hömlurnar eru í Kína. Næst á eftir Íslandi stendur Rússland og Sádi-Arabía kemur þar á eftir. Á hinum endanum eru Holland og Lúxemborg, sem hafa opnað dyrnar í fulla gátt fyrir beina fjárfestingu erlendra aðila. Aðildarríki OECD eru 31 talsins. Síðasta könnun var gerð fyrir fjórum árum. Þá var Ísland í öðru sæti á eftir Indlandi. Indverjar hafa opnað hagkerfi sitt nokkuð síðan þá og verma nú áttunda sætið yfir þau lönd sem hafa hæstu þröskuldana gegn beinni erlendri fjárfestingu. OECD birti skýrslu um möguleika erlendra aðila til að fjárfesta í öðrum löndum um mánaðamótin. Þar eru teknir með í reikninginn ýmsir þættir, sem ekki hafa verið settir inn í breytuna áður. Þar á meðal eru möguleikar erlendra aðila til að fjárfesta í fasteignum, fjölmiðlum, verslun og þjónustu og samgöngum. Miðað er við þrjá meginþætti, þar á meðal takmarkanir sem settar eru á erlent eignarhald og takmörkun á hlutfalli erlendra stjórnenda í fyrirtækjum. Á meðal þess sem dregur Ísland niður er algjört bann við fjárfestingu erlendra aðila í sjávarútvegi, námavinnslu, orkugeiranum og á fasteignamarkaði samkvæmt OECD. Viðmælendur Fréttablaðsins telja að einhverju leyti um oftúlkun OECD að ræða. Erlendir aðilar geti fjárfest hér hafi þeir heimilisfesti á EES-svæðinu. Þeir líta engu síður alvarlegum augum á málið. Niðurstöðurnar séu ekki til að auka traust erlendra fjárfesta á landinu. Núgildandi lög um takmarkanir erlendra aðila hér eru nítján ára gamlar, voru samþykktar árið 1991. Þar er lagt bann við eignarhaldi erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi, strangar takmarkanir settar við eignarhald erlendra aðila í innlendum flugrekstri og eignarhald í orkufyrirtækjum takmarkað við Íslendinga og aðila á EES-svæðinu. Nefnd sem fylgist með lögum um takmörkun erlendrar fjárfestingar hér taldi í janúar að endurskoða þyrfti lögin. Ekki náðist í Þórð H. Hilmarsson, forstöðumann hjá Fjárfestingarstofu, þegar eftir því var leitað í gær. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær að unnið væri að endurskoðun laga um takmarkanir á erlendri fjárfestingu. Líklegt væri að frumvarp um endurskoðun þeirra yrði lagt fram á haustþingi. „Ég get samt engu lofað," sagði hann.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira