Fyrirtæki geta hagrætt í rekstri með kaupum á aðgangi að hugbúnaði á netinu. 7. júlí 2010 06:45 Eftir því sem tölvur breytast og geymslurými verður minna mun gagnavistun færast í auknum mæli yfir á netið, segir Lars Mikkelgaard-Jensen, forstjóri IBM í Danmörku.Markaðurinn/GVA
Lítil fyrirtæki þurfa ekki lengur að kaupa dýran hugbúnað og leggja fjármagn í tölvukerfi. Þau geta sparað sér háar fjárhæðir með því að kaupa aðgang að tölvuskýjum (e. cloud computing) á netinu til lengri eða skemmri tíma. Þegar netnotkun eykst með farsímum og spjaldtölvum verður þetta framtíðin í upplýsingatækni. Þetta segir Lars Mikkelgaard-Jensen, forstjóri tölvurisans IBM á Norðurlöndum, en hann var staddur hér á dögunum. Þótt tæp hálf öld sé liðin frá því grunnhugmyndin að tölvuskýjum var lögð fram gerðist lítið sem almenningur gat greint fyrr en fyrir um fjórum árum. IBM var eitt þeirra fyrirtækja sem ruddu brautina. Mikkelgaard-Jensen segir tölvuskýin hafa verið á jaðrinum þar til nú. Um hálft ár sé síðan þau hafi verið mikið í umræðunni sem það heitasta og nýjasta í upplýsingatækni. Nú séu þau öllu hversdagslegri, orðin hluti af daglegum rekstri. Mikkelgaard-Jensen segir ómögulegt að spá fyrir um vöxt tölvuskýja í upplýsingatækni. „Við vitum það ekki, þetta er svo nýtt fyrir okkur. Fyrir hálfu ári var lítið í gangi. Fyrir þremur mánuðum tókum við eftir snörpum vexti. Það er næstum ómögulegt að spá fyrir um nánustu framtíð með vissu," segir hann en reiknar með að eftirspurn verði eftir gagnavist í tölvuskýjum með breyttri tölvunotkun, það er þegar handfrjálsar og litlar spjaldtölvur á borð við iPad og farsímar með öflugum netvöfrum en tiltölulega litlu geymslurými verða algengari. „Það er engin spurning að tölvunotkun er að færast í þessa átt," segir forstjórinn danski. - jab
Mest lesið Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Sjá meira