Verulega dregur úr samdrætti í veltu innanlands 17. mars 2010 12:31
Innlend velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum var um 2,6% minni að raunvirði á tímabilinu nóvember til desember síðastliðinn samanborið við sama tímabil árið 2008. Að nafnvirði jókst innlend velta hins vegar um 5,2%. Á þennan mælikvarða hefur verulega dregið úr samdrættinum í hagkerfinu en til samanburðar var samdrátturinn 13,4% að raunvirði á tímabilinu september til október síðastliðinn samanborið við sama tímabil 2008. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á árinu 2009 í heild var innlend velta 3,0% minni að nafnvirði en um 13,4% að raunvirði en árið 2008. Þetta má sjá í tölum yfir veltu fyrirtækja samkvæmt VSK-skýrslum til og með desember á síðasta ári. Í þessum tölum má jafnframt sjá hversu ólíku þróun veltu er í hinum ýmsu atvinnugreinum sem er til marks um hversu misjöfn skilyrði íslenskra fyrirtækja eru um þessar mundir. Ekki ætti að koma á óvart að velta í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð skrapp mikið saman á milli ára. Á ofangreindu tímabili veltu þessar greinar ríflega 23% færri krónum en á sama tíma árið áður, og að raunvirði nam samdráttur veltu í þeim 29%. Samdrátturinn er jafnframt mun meiri ef miðað er við árið 2009 í heild, eða sem nemur tæpum 48% að raunvirði. Ekki kemur heldur á óvart að velta í bílasölu dróst verulega saman enda hefur hún einnig átt undir högg að sækja. Þannig velti hún 10% færri krónum á tímabilinu nóvember til desember samanborið við sama tímabil 2008 og ef miðað er við árið í heild nam samdrátturinn 42% að nafnvirði. Á hinn bóginn jókst veltan í umboðs- og heildsölu um ríflega 24% í krónum talið á síðustu tveimur mánuðum ársins samanborið við sama tíma árið á undan en á árinu í heild jókst hún um rúm 7% á sama mælikvarða. Velta í fiskveiðum var 2% minni að nafnvirði í nóvember og desember í fyrra en á sama tíma árið 2008 en á árinu í heild jókst veltan hins vegar um ríflega 10% að nafnvirði. Þá jókst velta í matvæla- og drykkjarvöruiðnaði, sem nær bæði yfir landvinnslu sjávarfangs og matvöruframleiðslu til innlendrar neyslu, um 5,5% að nafnvirði á síðustu tveimur mánuðum ársins miðað við sama tímabil árið 2008 og ef miðað er við árið 2009 í heild var aukningin enn meiri, eða sem nemur 15,3% milli ára. Velta í framleiðslu málma var 8,6% meiri að nafnvirði í nóvember og desember en í sömu mánuðum árið á undan en á árinu í heild stóð veltan nánast í stað frá fyrra ári en mikið verðfall varð á áli á seinni hluta síðasta árs. Velta í flugsamgöngum jókst um 3,8% í krónum talið og velta hjá hótelum og veitingastöðum um 2,3%. Á árinu 2009 í heild virðast flugsamgöngur hafa gengið með ágætum en velta í þeim geira var 19,7% meiri að nafnvirði á árinu 2009 en 2008. Rekstur hótela og veitingahúsa virðist ekki hafa notið lágs gengis krónu með sama hætti og flugreksturinn, og var einungis um 1,9% krónutöluaukning í veltu á þessum tíma.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira