Fjárfestar kæra tvö Landsbankamál til Fjármálaeftirlitsins 21. febrúar 2010 14:36
Fjárfestar hafa óskað þess að Fjármálaeftirlitið rannsaki söluferli tveggja fyrirtækja hjá Landsbankanum. Annars vegar sölu Slippfélagsins og hins vegar söluna á Bílaleigu Flugleiða. Greint er frá þessu á vefsíðu Sigurjóns M. Egilssonar, Hann fjallaði einnig um málið í þætti sínum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Á vefsíðunni segir að það var í fyrrihluta janúar sem hópur manna lýsti yfir áhuga á að kaupa málningarverksmiðju Slippfélagsins, og það gegn staðgreiðslu. Hópurinn átti peninga og þurfti ekki lán til kaupanna. Áður en til þessa kom hafði Slippfélagið misst sinn sterkasta samning, það er framleiðslu og sölu á Hempels skipamálningu. Í kærunni kemur fram að starfsmaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans hafi sagt að bankinn væri ekki tilbúinn til að taka á móti staðgreiðslutilboði í Slippfélagið. Engin haldbær rök voru færð fyrir þessari afstöðu bankans og ekki var spurt að því hversu mikið fjárfestarnir væru tilbúnir að greiða fyrir Slippfélagið. Þegar þetta var var Slippfélagið óselt og verið að leita kaupanda. Haft var samband við Ásmund Stefánsson, bankastjóra Landsbankans, með tölvupósti vegna málsins, en Sigurjón segist vita að hann svaraði því aldrei. Ekki löngu síðar var sagt í fjölmiðlum að Landsbankinn hefði selt Málningu hf. allar eigur Slippfélagsins sem og vörumerki, en ekki félagið sjálft. Hluti af kaupunum var að leggja niður rekstur Slippfélagsins. Og hvað, jú láta það deyja. Þetta var gert þrátt fyrir ágæta rekstrarafkomu á árinu 2009. Síðan hefur Málning hf. sagt upp fjölda starfsmanna sem áður störfuðu hjá Slippfélaginu. Allri framleiðslu hefur verið hætt í húsakynnum Slippfélagsins við Dugguvog. Fjárfestarnir hafa ekki fengið að vita á hvaða verði Slippfélagið var selt og ekki hvort Landsbankinn, bankinn sem vildi ekki staðgreiðslu, hafi fjármagnaði kaupin. Sami fjárfestahópur tók þátt í söluferli Bílaleigu Flugleiða. Þar sem Hertz Englandi kom að sölunni treystu menn því að sagan frá Slippfélaginu myndi ekki endurtaka sig. Í kærunni til Fjármálaeftirlitsins er fullyrt að þar hafi verið gróf mismunun. Gögn voru ekki afhent öllum á sama tíma auk þess sem einstaka þátttakendur fengu upplýsingar varðandi söluna sem aðrir fengu bara alls ekki. Landsbankinn er kærður fyrir að haf algjörlega brugðist skyldum sínum með því að virða ekki eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og að hafa litið fram hjá því að hámarka söluverð fyrirtækja sem óbeint eru í eigu ríkisins.
Mest lesið Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Festi hagnast umfram væntingar Viðskipti innlent Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Viðskipti innlent Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Gengi Novo Nordisk steypist niður Viðskipti erlent Fleiri fréttir Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Sjá meira