Fyrirtækin skulda um 112 milljarða í skatta 18. mars 2010 00:01 fjármálaráðherra Steingímur J. Sigfússon mælti fyrir frumvarpinu á mánudag og er það þegar komið til meðferðar þingnefnda. Reiknað er með að það fái skjóta afgreiðslu á Alþingi. fréttablaðið/pjetur
Alls voru um 112 milljarðar króna í vanskilum af sköttum og opinberum gjöldum hjá atvinnulífinu um síðustu áramót, samkvæmt áætlunum. Tekur það bæði til lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri. Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um að hægt verði að fresta greiðslu á þessum skuldum. Fyrsta kastið er hægt að fá frest til 1. júlí 2011. Ekki verða lagðir dráttarvextir á kröfuna á því tímabili. Hafi fyrirtæki haldið skilyrðin er tollstjóra heimilt að samþykkja útgáfu skuldabréfa til fimm ára. Skuldabréfið er án vaxta. Um er að ræða virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda og þing- og sveitarsjóðsgjöld sem gjaldfallið hafa fyrir 1. janúar 2010. Til að fá greiðslufrest verða viðkomandi að vera í skilum með aðra skatta og gjöld og vera í skilum allan frestunartímann. Af þeim 112 milljörðum sem eru útistandandi eru tæpir 40 í gjaldþrotameðferð. Frumvarpið tekur til hinna 72 milljarðanna. Til samanburðar eru fjárlög ársins 2010 um 555,6 milljarðar króna. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að með þessu eigi að aðstoða fyrirtæki sem eigi í vandræðum. Mörg lífvænleg fyrirtæki berjist í bökkum vegna vanskila og sporna þurfi við því. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að aðeins hluti fjárhæðanna verði innheimtur að óbreyttu; reynslutölur síðustu ára sýni að aðeins 20 til 30 prósent innheimtist. Með þessu úrræði verði vaxtagreiðslur í allt að fimm ár gefnar eftir auk vaxta af útgefnu skuldabréfi í allt að fimm ár. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa tekið jákvætt í hugmyndina. Þeir taka þó fram að huga verði að samkeppnissjónarmiðum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvæða hugsun felast í frumvarpinu. Taka verði á þessu vandamáli. „Okkur sýnist að verið sé að reyna það með þessu máli, að fyrirtæki séu ekki keyrð beint í gjaldþrot. Við viljum reyna að vinna með því."- kóp
Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira