Viðskipti innlent

Líkti íslenskum viðskiptamönnum við holdsveikissjúklinga

Einn af seðlabankastjórum Seðlabanka Íslands ræddi við kollega sinn í Lúxemborg sem hafði ófögur orð um íslenska fjármálamenn.
Einn af seðlabankastjórum Seðlabanka Íslands ræddi við kollega sinn í Lúxemborg sem hafði ófögur orð um íslenska fjármálamenn.

Í síðari hluta júní 2008 var haldinn ársfundur Alþjóðagreiðslubankans í Basel en þar ræddi seðlabankastjóri Lúxemborgar, Yves Mersch, við Ingimund Friðriksson, einn þriggja seðlabankastjóra á Íslandi.

Þar sagði Mersch við Ingimund að íslensku bankarnir hefðu nýtt sér fyrirgreiðslu Seðlabanka Evrópu fram úr öllu hófi og sagt að engir bankar vildu lengur eiga viðskipti við þá. Þeir væru eins og holdsveikisjúklingar sem enginn vildi koma nálægt.

Á þessum tíma höfðu íslensku bankarnir fengið fjóra milljarða evra að láni hjá Seðlabanka Lúxemborg.

Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, hafði áður haft samband við Davíð Oddsson undir lok apríl 2008 og lýst óánægju sinni með veðlánstöku

íslensku bankanna hjá Seðlabanka Lúxemborgar.

Þessi samskipti báru keim viðhorfsbreytinga erlendra seðlabankastjóra gagnvart Íslendingum samkvæmt rannsóknarskýrslunni í aðdraganda hrunsins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×