Dollarinn hefur fallið um 12% gagnvart krónu frá júní 23. september 2010 11:16
Gengi Bandaríkjadollars gaf eftir í gær gagnvart öllum helstu myntum og í kjölfarið fór dollarinn niður í 115 krónur. Hefur dollarinn þá ekki verið jafn ódýr í krónum talið síðan í mars á síðasta ári. Gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar hefur nú styrkst um 4% frá því í septemberbyrjun og um 12% frá júníbyrjun. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að það sem olli veikingu dollars í gær var svartsýn ræða Ben Bernanke seðlabankastjóra í kjölfar vaxtaákvörðunarfundar vestanhafs. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í 0-0,25% en ræða seðlabankastjóra í kjölfar ákvörðunarinnar þótti afar svartsýn, sem varð til þess að dollarinn gaf eftir. Við lok markaða í Bandaríkjunum í gær kostaði evran 1,339 dollara og er það hæsta gildi sem evru/dollar krossinn hefur tekið síðan í apríl síðastliðnum. Þessi hreyfing gekk þó að einhverju leyti til baka núna í morgun og stendur evru/dollar krossinn nú í 1,335. Það sem olli svartsýni Ben Bernanke eru veikar hagvaxtarhorfur í Bandaríkjunum og lélegar hagtölur, en talsvert hefur hægt á efnahagsbatanum vestan hafs sem veldur Bernanke og fleirum þungum áhyggjum. Þykir þetta auka líkurnar á því að vöxtum verði haldið lágum í Bandaríkjunum lengur en ella.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira