Arion banki fær skell vegna Haga 23. september 2010 06:48
Hlutafjárvirði Haga hleypur á tíu til 21 milljarðs króna. Óvíst er hvernig himinháum skuldum verður breytt. Ekki er útilokað að sá fjárfestir sem kaupir félagið greiði lítið en fái ellefu milljarða króna skuldir í heimanmund.Arion banki gæti þurft að afskrifa hluta af skuldum Hagasamstæðunnar eða breyta skuldum í hlutafé áður en félagið verður selt eða skráð á markað.Önnur leiðin væri að selja félagið fyrir tiltölulega lága fjárhæð en láta milljarðaskuldir samstæðunnar fylgja með í kaupunum. Afskriftirnar koma til viðbótar niðurfærslu á tugmilljarða láni bankans til 1998, móðurfélags Haga. Óvíst er hver mikil sú niðurfærsla verður.Hagar, móðurfélag Hagkaupa, Bónuss og fjórtán annarra verslana, er með þrettán milljarða króna skuld sem fellur á gjalddaga í lok þarnæsta rekstrarárs 2012, líkt og fram kemur í nýbirtum ársreikningi. Rekstrarári Haga lýkur í febrúarlok. Lán félagsins er óverðtryggt í íslenskum krónum.Eiginfjárhlutfall Haga í lok rekstrarársins var 10,3 prósent samanborið við 10,8 prósent árið á undan. Fram kemur í óformlegu mati IFS að Haga-samstæðan sé of skuldsett og eiginfjárhlutfallið of lágt. Eðlilegra væri ef það lægi í kringum þrjátíu til fjörutíu prósenta í stað tíu.IFS hefur jafnframt gert óformlegt mat á hugsanlegu virði hlutafjár Haga. Miðað er við að hlutafjárvirði félagsins gæti hlaupið á allt frá tíu milljörðum króna til rétt rúmlega átján. Allt fer það eftir þeim margfaldara sem stuðst er við. Miðað er við margfaldarann 7,0 sem hlutfall heildarvirðis á móti rekstrarhagnaði og sambærilegur við margfaldara verslanasamstæða í öðrum löndum, er virði Haga tæpir 14,2 milljarðar króna.Rekstrarkostnaður í fyrra var hins vegar hár vegna væntanlegrar skráningar samstæðunnar á markað. Að teknu tilliti til þess hækkar virðið um 6,7 milljarða króna, í tæpan 21 milljarð króna.Ekki er tillit tekið til sölu á verslunum 10-11 úr Haga-samstæðunni í mati IFS. -jonab
Mest lesið Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent