Slitastjórnin höfðar hugsanlega mál gegn stjórnendum Kaupþings 4. janúar 2010 18:34
Slitastjórn Kaupþings er að kanna hvort forsendur séu fyrir skaðabótamáli gegn fyrrverandi stjórnendum bankans, meðal annars Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra og Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni. Beðið er eftir hvort niðurstaða rannsóknar endurskoðunarfyrirtækisins PriceWaterhouseCoopers leiði í ljós hvort þeir hafi brotið hlutafélagalög. Endurskoðunarfyrirtækið var fengið til að rannsaka öll viðskipti sem Kaupþing gerði við stjórnendur, starfsmenn og tengda aðila. Rannsóknin hófst síðasta haust en hún er viðamikil þar sem farið er yfir bókhald bankans og löggerninga allt að tvö ár aftur í tímann. Upphaflega var gert ráð fyrir að niðurstaða myndi liggja fyrir í lok janúar en líklegt þykir að einhver töf verði á henni sökum þess hve umfangsmikil rannsóknin er. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun slitastjórn bankans leggja þessar niðurstöður til grundvallar þeirri ákvörðun að hefja skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum bankans. Slíkt mál yrði meðal annars höfðað á þeirri forsendu að þeir hefðu ekki farið eftir hlutafélagalögum og því ekki gætt hagsmuna eigenda bankans. Farið verður yfir einstök mál og skoðað hvort að það hafi verið fyrirséð í einhverjum tilvikum að viðskiptavinir, sem fengu háar lánveitingar, gætu ekki staðið í skilum. Auk þess sem farið verður yfir hvort lánin hafi verið með nægjanlegum tryggingum. Þá mun einnig verða skoðað hvort að farið hafi verið eftir lánareglum bankans.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira