Tilraunir þrotabús Baugs gætu haft þveröfug áhrif 4. janúar 2010 19:00
Tilraunir þrotabús Baugs til að lækka kröfu Straums í þrotabúið gætu að endingu haft þveröfug áhrif. Þrotabúið kallaði eftir nýju verðmati á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki sem gerði risasamning við Microsoft sem reyndist svo vera lægra en upphaflegt mat. Baugur var aðaleigandi fyrirtækisins áður en Straumur tók það yfir. Straumur átti veð í LS Retail og tók fyrirtækið yfir í febrúar á síðasta ári. Við það lækkaði krafa Straums í þrotabú Baugs. Rúmum sjö mánuðum eftir að Straumur tók fyrirtækið yfir seldi það hugbúnaðarlausnina LS Retail AX til Microsoft. Söluverðið hefur ekki verið gefið upp en samkvæmt heimildum fréttastofu nam það um 400 milljónum króna. Eftir að fréttir bárust af sölunni kallaði þrotabúið eftir nýju verðmati á fyrirtækinu þar sem ekki var talið að yfirvofandi samningur við Microsoft hefði verið tekinn inn í fyrra verðmat. Þrotabúið hélt því fram að í ljósi samningsins væri virði fyrirtækisins mun meira en áætlað var þegar Straumur tók félagið yfir og vildi því freista þess að krafa Straums í búið yrði lækkuð. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði nýtt verðmat sem var tilbúið nú í desember. Samkvæmt því var fyrra verðmat of hátt og tók Straumur því félagið yfir á of háu verði. Krafa Straums á Baug sem nú nemur 22 milljörðum króna getur því hækkað verði nýtt verðmat lagt til grundvallar. Tilraunir þrotabúsins til að lækka kröfu bankans gætu því endað með því að hafa þveröfug áhrif.
Mest lesið Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent