Greiddu út ólöglegan arð upp á milljarða Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 1. maí 2010 18:25
Ríflega tvöhundruð fyrirtæki greiddu út ólögmætan arð á síðustu fimm árum samkvæmt fyrstu niðurstöðu skattayfirvalda. Grunur leikur á að arðgreiðslurnar nemi nokkrum milljörðum króna. Skattyfirvöld hafa undanfarið skoðað hvort fyrirtæki hafi greitt út ólögmætan arð. Skoðunin nær til síðustu fimm ára en grunur leikur á að nokkuð algengt hafi verið að lög hafi verið brotin þegar arður var greiddur út úr félögum. Samkvæmt hlutafélagalögum má ekki greiða út arð á fyrsta starfsári félags. Þá má ekki greiða út arð ef fyrirtækið hefur verið rekið með tapi eða ef arðgreiðslustofninn er neikvæður. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur fyrsta athugun skattyfirvalda leitt í ljós að ríflega 200 fyrirtæki hafi greitt út ólögmætan arð. Flest þessara fyrirtækja eru lítil og nema arðgreiðslurnar að jafnaði um 10 til 15 milljónum króna. Í heildina þó nokkrum milljörðum. Stuðst var við vélræna leit og leikur grunur á að nokkur stór fyrirtæki hafi af einhverjum ástæðum ekki komið fram við hana. Munu skattyfirvöld því fara nánar yfir framtöl þeirra. Alla jafna þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af arðgreiðslum sem nemur í dag 18%. Ólögmætar arðgreiðslur verða skattlagðar sem launatekjur, eða í uþb 40% skattþrepi. Að auki hafa skattyfirvöld heimild til að leggja 25% álag ofan á það. Skattálagning mun í flestum tilvikum beinast að þeim sem fengu arðgreiðslurnar. Eigendur þessara 200 fyrirtækja munu á næstu vikum og mánuðum fá fyrirspurn um málið frá skattyfirvöldum.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Sjá meira