Viðskipti innlent

Markaðsskuldabréf lækkuðu um 61,7 milljarða í mars

Staða markaðsskuldabréfa í lok mars 2010 nam 1.413 milljörðum a.kr. og lækkaði um 61,7 milljarða kr. í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að staða óverðtryggðra ríkisbréfa nam 333,6 milljarða kr. í lok mars 2010, samanborið við 260,1 milljarða kr. í mars 2009, sem er aukning um 30% milli ára.

Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöll Íslands nam 243,4 milljarða kr í lok mars 2010 sem er aukning um 40% frá mars mánuði 2009.

Jafnframt segir í hagtölunum að samhliða þessari birtingu hafa tölur fyrir húsbréf og húsnæðisbréf frá desember 1999 til nóvember 2001 verið endurskoðaðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×