Samið við Deutsche Bank um að Björgólfur haldi Actavis Sigríður Mogensen skrifar 14. apríl 2010 11:49
Samkvæmt heimildum Fréttastofu er unnið að samkomulagi við Deutche bank, stærsta kröfuhafa Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem gengur út á að Björgólfur haldi Actavis. Verðmæti Actavis er lykilatriði í skuldauppgjöri Björgólfs Thors. Kröfuhafar Björgólfs Thors eru Deutche bank, Landsbankinn, Glitnir og Straumur. Eins og fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis voru þeir feðgar Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson meðal allra stærstu lántakendanna í íslenska bankakerfinu. Útlán til hóps Björgólfs Thors fóru hæst í um 240 milljarða króna. Stærsti kröfuhafi Björgólfs Thors er hins vegar Deutche bank, en sem kunnugt er fjármagnaði þýski bankinn kaupin á Actavis árið 2007. Aðrir kröfuhafar fyrir utan Landsbankann eru Straumur, Glitnir og Kaupþing að litlu leyti. Stærsta og mikilvægasta eign Björgólfs er eignarhluturinn í Actavis. Björgólfur Thor á einnig hlut í CCP, fjarskiptafyrirtækið Nova, hlut í Verne Holdings og hlut í símafyrirtækinu Play í Póllandi. Björgólfur Thor segir í grein í Fréttablaðinu í dag að verið sé að vinna að uppgjöri skulda hans og að hann muni starfa í þágu kröfuhafa um ókomin ár. Samkvæmt heimildum Fréttastofu er unnið að samkomulagi við Deutche bank, stærsta kröfuhafa Björgólfs, sem gengur út á að Björgólfur haldi Actavis. Verðmætaaukning félagsins eða hugsanlegur söluhagnaður muni síðan ganga upp í skuldir hans við Deutche bank og það sem eftir stendur fara til annarra kröfuhafa. Hversu miklar endurheimtur á skuldum hans verða ræðst því að miklu leyti af framgangi Actavis og verðmætaþróun þess félags.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira