Exista hagnaðist um 90 milljarða á gjaldeyrisviðskiptum 14. apríl 2010 14:44 Athygli vekur að félagið kaupir umtalsvert magn af gjaldeyri, eða samtals rúmlega milljarð evra, í framvirkum viðskiptum í apríl 2007.
Rannsóknarnefnd Alþingis metur hagnað Exista af gjaldeyrisviðskiptunum við Kaupþing upp á tæpa 90 milljarða íslenskra króna á á árunum 2007 og 2008. Eins og kunnugt er var Exista stærsti eigandi Kaupþings á þessu tímabili en samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar átti félagið í gífurlegum gjaldeyrisviðskiptum við Kaupþing fram að hruninu um haustið 2008. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir gjaldeyrisviðskipti Exista hf. Athygli vekur að félagið kaupir umtalsvert magn af gjaldeyri, eða samtals rúmlega milljarð evra, í framvirkum viðskiptum í apríl 2007. Þessi upphæð nam á þeim tíma um fjórðungi af mánaðarlegri veltu á gjaldeyrismarkaði. Svo virðist sem þessi staða hafi verið framlengd í gjaldeyrisskiptasamningum allt fram til október 2008 þegar félagið seldi um 1,3 milljarða evra í stundarviðskiptum við Kaupþing. Einnig vekur athygli að félagið kaupir jafnvirði um 500 milljóna evra af gjaldeyri í desember 2007 í gegnum framvirk viðskipti við Kaupþing. Mun það að stórum hluta skýra mikil viðskipti Kaupþings á millibankamarkaði með gjaldeyri þann mánuðinn en bankinn mun hafa þurft að sækja sér varnir gagnvart stöðu Exista í framvirka samningnum. Þegar kemur fram í október 2008 selur svo Exista sem nemur rúmlega öllum þeim gjaldeyri sem félagið hafði keypt frá ársbyrjun 2007 og fer stærstur hluti þeirra viðskipta fram 21. október 2008 þegar um 1.244 milljónir evra eru seldar á genginu 150,5 kr., 1.135 milljónir japanskra jena seldar á genginu 1,176 kr. og tæpar 52 milljónir Bandaríkjadala á genginu 114,02 kr. „Þegar litið er til afkomu félagsins vegna þeirra gjaldeyrisviðskipta sem það átti við Kaupþing frá upphafi árs 2007 og fram til loka október 2008 metur rannsóknarnefnd Alþingis hagnað Exista af viðskiptunum upp á tæpa 90 milljarða íslenskra króna og er þá miðað við skráð gengi hverra viðskipta í gagnasafni Kaupþings og miðað við að gjaldeyriseign félagsins sé engin við upphaf og lok tímabilsins", segir í skýrslunni.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira