Viðskipti innlent

SP-Fjármögnun fer að tilmælunum

Bíla- og kaupleigusamningar hjá SP-Fjármögnun verða endurreiknaðir samkvæmt tilmælum FME og Seðlabanka Íslands. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að starfsfólk muni hraða þeirri vinnu eins og kostur er svo unnt verði að senda út greiðsluseðla að nýju.

„Þrátt fyrir tilmælin ríkir enn óvissa um hvernig eigi að endurreikna umrædd lán. Úr henni mun ekki fást skorið fyrr en dómstólar kveða upp endanlegan dóm í þeim efnum. Þeim dómi mun SP-Fjármögnun að sjálfsögðu hlýta," segir einnig.

Þá áréttar SP-Fjármögnun að þrátt fyrir tilmæli FME og Seðlabankans um fyrirkomulag endurreiknunar lánanna hafa viðskiptavinir ekki fyrirgert rétti sínum komist Hæstiréttur að annarri niðurstöðu en tilmælin fela í sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×