Viðskipti innlent

Segir spákaupmenn ráða öllu á íslenska skuldabréfamarkaðinum

„Spákaupmenn eru allsráðandi á markaðnum. Þeir hafa tekið stórar stöður í löngum ríkistryggðum bréfum og ýkja þar með kröfulækkun þeirra bréfa."

Þetta kemur fram í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa þar sem fjallað er um þróunina á skuldabréfamarkaðinum hérlendis. Þar segir einnig að spákaupmennirnir treysti á að aðrir fjárfestar fylgi þeim eftir þ.á.m. lífeyrissjóðir og fleiri sem eru að færa fé af innlánsreikningum til fjárfestingar í ríkistryggðum skuldabréfum.

Verðtryggð skuldabréf hækkuðu mikið í liðinni viku, lengri bréfin um 3,39% og styttri um 1,74%. Löng óverðtryggð bréf lækkuðu hins vegar aðeins eða um 0,27%.

Stöðnun ríkir í íslenska hagkerfinu og því þykir líklegt að Seðlabankinn lækki vexti verulega á næsta vaxtaákvörðunardegi 22. september n.k. Lítil ástæða er til að halda vöxtum háum þar sem litlar líkur eru á að gjaldeyrishöftin verði afnumin á næstunni og því sjá höftin um að verja krónuna næstu misserin, að því er segir í Markaðsfréttunum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×