Telur ólíklegt að álverið verði 360 þúsund tonna 21. janúar 2010 01:15 trölladyngja Eitt þeirra svæða sem náttúruverndarsamtök telja að geti eyðilagst verði álver í Helguvík 360 þúsund tonna. Réttara væri að friða svæðin en huga að nýtingu þeirra.
Sjö umhverfissamtök, þar með talið Græna netið sem tilheyrir Samfylkingunni, hafa sent ríkisstjórninni áskorun um að gerð verði rækilega grein fyrir hvaða háhitasvæði og vatnsföll verður nauðsynlegt að virkja til að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álver í Helguvík. Samtökin telja að slíkri orkuvinnslu fylgi ráðstöfun fjölmargra dýrmætra hverasvæða og vatnsfalla, sem réttara væri að vernda en nýta. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir stjórnvöld ekki hafa skuldbundið sig til neinnar orkuöflunar fyrir álver í Helguvík. Fyrir liggi samningar á milli Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur annars vegar og Hitaveitu Suðurnesja hins vegar. Þar sé aðeins rætt um orku fyrir 250 þúsund tonna álver. Ekki séu leyfi fyrir stærra álveri. Ágúst Hafberg hjá Norðuráli segir að enn sé stefnt að 360 þúsund tonna álveri. Enn standi það sem hann sagði í samtali við Fréttablaðið í nóvember: „Við viljum vera þokkalega vissir um að við fáum alla áfangana.“ Hann telur líta vel út með orkuöflun fyrir svo stórt álver. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að þessari áskorun verði að sjálfsögðu svarað, líkt og öðrum erindum sem beint er til hennar. Hún þurfi ráðrúm til að svara erindinu. „Þetta samræmist ágætlega þeirri sýn sem stundum er kennd við sjálfbæra þróun að allar upplýsingar þurfi að liggja á borðinu.“ Sjálf hafi hún kallað eftir svipuðum upplýsingum sem stjórnarmaður Orkuveitunnar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður umhverfisnefndar Alþingis, segir að því sé ekki fullsvarað hvaðan orkan eigi að koma, verði ráðist í annan áfanga álversins. „Mér finnst sjálfsagt, og það gæti gert umræðunni gott, að fá skýrt yfirlit um það frá orkufyrirtækjunum og sveitarfélögunum hvað þau ætlast til í þeim efnum.“ Spurð hvort hún telji rétt að stækka álverið í 360 þúsund tonn segir Þórunn: „Það er bara annað og stærra viðfangsefni og það er margt sem bendir til að það verði aldrei ráðist í þá framkvæmd.“ Iðnaðarráðherra segist munu taka afstöðu til stækkunar verði um hana sótt, fyrst sé að klára fyrsta áfangann. Hún muni taka afstöðu með tilliti til annarrar uppbyggingar. Menn þurfi að fara að öllu varlega og ekkert launungarmál sé að stjórnvöld vilji setja eggin í fleiri en eina körfu. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira