Ágúst og Lýður missa tökin á Existu 8. ágúst 2010 12:04 Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir munu ekkert eiga í Existu í framtíðinni. Mynd/ Hari.
Stjórn Existu ætlar að freista þess að rifta tilteknum gjörningum sem fyrrverandi eigendur og stjórnendur félagsins framkvæmdu. Ágúst og Lýður Guðmundssynir, fyrrverandi aðaleigendur Existu, munu ekki eiga neitt í félaginu í framtíðinni. Í byrjun mars samþykkti meirihluti kröfuhafa Bakkavarar nauðasamninga félagsins og voru einungis tvö prósent þeirra á móti. Hefðu nauðasamningar verið felldir hefði móðurfélag Bakkavarar farið í þrot og lán til rekstrarfélaga erlendis verið gjaldfelld. Við það hefði Bakkavararveldið hrunið og ekkert fengist upp í skuldir sem nema rúmum sextíu milljörðum króna. Þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hættu svo í stjórn Existu á framhaldsaðalfundi félagsins sem haldinn var í lok apríl. Forstjórar félagsins létu einnig af störfum. Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að kröfuhafar muni fá á bilinu sjö til rúmlega fimmtíu prósent krafna sinna greiddar á næstu tíu til tuttugu árum og tíu prósent krafna verði breytt í verðlaust hlutafé verði nauðasamningur samþykktur. Helstur kröfuhafar eru lífeyrissjóðir, ásamt skilanefndum Glitnis og Kaupþings, Íslandsbanka, Arion banka, Landsbankanum, MP banka og sparisjóðunum. Í trúnaðargögnum Viðskiptablaðsins kemur einnig fram að þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, fyrrverandi aðaleigendur félagsins, munu ekki eiga neitt í félaginu í framtíðinni. Exista á 100% hlut í Skiptum, móðurfélagi Símans, Lýsingu, VÍS og Lífis. Í gögnunum kemur fram að Skipti og Lýsing séu verulega skuldsett og því lítið verðmæti fólgið í hlutafé þeirra sem stendur. Búist er við að afstaða kröfuhafa gagnvart nauðasamningsfrumvarpinu muni liggja fyrir á allra næstu dögum.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira