Tap útlendinga vegna bankahrunsins ekki undir 7000 milljörðum 19. ágúst 2010 11:42 Mynd/GVA
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að tap útlendinga vegna bankahrunsins á Íslandi verði ekki undir sjö þúsund milljörðum króna, en það er um fjórföld landsframleiðsla þjóðarinnar. Steingrímur skrifar fyrstu grein sína af sex um íslenskt samfélag og efnahagsmál í Viðskiptablaðið og Fréttablaðið í dag, en greinar hans munu birtast í blöðunum á næstu vikum. Steingrímur segir í grein sinni í blaðinu í dag að beinar afleiðingar bankahrunsins á afkomu ríkisins hafi verið geigvænlegar. Bókfærður halli samkvæmt rekstrarreikningi ríkisins varð 216 milljarðar króna á árinu 2008 í stað 89 milljarða afgangs á árinu 2007, eða um tvö hundruð milljarða króna sveifla. Steingrímur segir að tap erlendra aðila vegna þess sem hér gerðist liggi ekki endanlega fyrir en verði líklegast ekki undir sjö þúsund milljörðum króna, en það er um fjórföld landsframleiðsla Íslands. Þá rifjar Steingrímur upp að hrun stóru bankanna þriggja sé sjötta, níunda og tíunda stærsta gjaldþrota sögunnar. Steingrímur segir að það hljóti að teljast einstakt og heimssögulegt hjá svo smáu hagkerfi. Steingrímur segir að stærstu tölurnar liggi í töpuðum kröfum vegna þess sem hann kallar gjaldþrot Seðlabanka Íslands, en 192 milljarðar króna hafi verið gjaldfærðir vegna þess. Þá nálgist kostnaður vegna endurfjármögnunar banka og sparisjóða tvo hundruð milljarða króna. Heildarskuldir ríkisins í árslok 2007 hafi verið 560 milljarðar króna eða um 43 prósent af landsframleiðslunni en þær hafi farið í tæplega 1200 milljarða í lok árs 2008 eða rúmlega 80 prósent af landsframleiðslunni.
Tengdar fréttir Landið tekur að rísa! - Grein 1 Á annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að dragast niður í úrlausnarefnin, lokast inni við hið hversdagslega amstur daganna. Vill þá farast fyrir að lögð séu niður amboðin og gengið á sjónarhól mannlífs og atburða, skyggnst um og horft jafnt um öxl sem fram á veginn. 19. ágúst 2010 06:00 Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Landið tekur að rísa! - Grein 1 Á annasömum tímum hættir eflaust fleirum en höfundi til að dragast niður í úrlausnarefnin, lokast inni við hið hversdagslega amstur daganna. Vill þá farast fyrir að lögð séu niður amboðin og gengið á sjónarhól mannlífs og atburða, skyggnst um og horft jafnt um öxl sem fram á veginn. 19. ágúst 2010 06:00