Samband íslenskra sparisjóða segir óvissu lokið 23. apríl 2010 10:17 Viðskiptavinir munu ekki verða fyrir neinum óþægindum vegna þessara breytinga, því starfsemin heldur áfram í óbreyttri mynd, innlán eru örugg, útibú opin og sama starfsfólk þjónar viðskiptavinum. „
Með þessum atburðum lýkur þeirri óvissu sem hefur ríkt um einstaka sparisjóði og sparisjóðanetið alveg frá bankahruninu í október 2008," segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða um fréttirnar af Byr og Spkef.Tilkynningin hljóðar svo: „Fjárhagsleg endurskipulagning sparisjóðanna hefur verið í vinnslu um langt skeið í góðu samstarfi við ríkisstjórn, ráðuneyti, Fjármálaeftirlit og Seðlabanka. Tveir sparisjóðir, Byr-sparisjóður og Sparisjóðurinn í Keflavík hafa jafnframt verið í erfiðum samningum við erlenda lánardrottna sína.Nú er ljóst að hinir erlendu lánardrottnar samþykkja ekki þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að þessir tveir sparisjóðir verði starfhæfir. Þess vegna ákváðu stjórnir þeirra að skila starfsleyfi sínu í gær og óskuðu eftir því að FME tæki yfir stjórn sjóðanna. FME hefur þegar skipað bráðabrigðastjórn sem hefur tekið yfir stjórn Byrs og Sparisjóðsins í Keflavík. Aðgerðin er sambærileg við það þegar gömlu viðskiptabankarnir þrír voru teknir yfir af ríkinu í október 2008.Viðskiptavinir munu ekki verða fyrir neinum óþægindum vegna þessara breytinga, því starfsemin heldur áfram í óbreyttri mynd, innlán eru örugg, útibú opin og sama starfsfólk þjónar viðskiptavinum.Aðrir sparisjóðir hafa þegar náð samkomulagi um sín mál og stefna að því að ljúka öllum formsatriðum vegna þess á næstu vikum. Starfsemi þeirra er tryggð og viðskiptavinir geta verið ánægðir með sinn sparisjóð hér eftir sem hingað til.Með þessum atburðum lýkur þeirri óvissu sem hefur ríkt um einstaka sparisjóði og sparisjóðanetið alveg frá bankahruninu í október 2008. Nú er ljóst að sparisjóðir munu áfram verða lykilaðilar í að tryggja aðgengi allra landsmanna að góðri fjármálaþjónustu með hagsmuni síns samfélags og sinna viðskiptavina að leiðarljósi."
Mest lesið Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent PlayStation 5 slær Xbox 360 við Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira