Bankarnir ógna samkeppni 5. mars 2010 16:10 Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Nýtt frumvarp viðskiptaráðherra um lög um fjármálafyrirtæki setur bönkum ekki nægilega skýr skilyrði varðandi eignarhald fyrirtækja, að mati Félags atvinnurekenda. Félagið telur að fari frumvarpið óbreytt í gegnum þingið sé hætta á að bankarnir ógni samkeppni því frumvarpið seti bönkum ekki nægilega skýr skilyrði varðandi eignarhald fyrirtækja. Frumvarpið tekur til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki og hefur það verið í smíðum í viðskiptaráðuneytinu í tæpt ár. Í áliti sem Félag atvinnurekenda hefur skilað til viðskiptanefndar Alþingis er gagnrýnt að í frumvarpinu sé fátt sem takmarki hversu lengi bankarnir geti átt fyrirtæki í atvinnurekstri eða hvenær þau skuli seld. Nauðsynlegt sé að setja bönkunum mun þrengri ramma um inngrip í samkeppnismarkaði. Í verklagsreglum fjármálafyrirtækja er sagt að „stefna skal að því að selja eignarhluti í fyrirtækjum eins fljótt og hagkvæmt er." Þetta orðalag er ekki fullnægjandi, að mati félagsins. „Félagsmenn í Félagi atvinnurekenda eru mjög uggandi vegna þessa máls. Þeir telja að ríkisstjórnin hafi lofað að standa vörð um samkeppni. Eðlilegast sé að fyrirtæki í eigu bankanna séu seld í opnu og gagnsæju ferli og tryggt sé með lögum að hlutverk bankanna sé að lána íslensku atvinnulífi en ekki reka það. Reynslan af hinu síðarnefnda er slæm," segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, í tilkynningu.
Mest lesið „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Viðskipti innlent SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ Atvinnulíf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Viðskipti innlent Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað Neytendur Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Viðskipti innlent Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Viðskipti innlent Gjaldþrot olíuleitarfélags upp á 12 milljarða Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Fleiri fréttir Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Sjá meira