Dótturfélag Nýherja undirritar 1,8 milljarða samning 26. apríl 2010 16:06
Applicon A/S, dótturfélag Nýherja hf. í Danmörku, hefur sem undirverktaki þýska fyrirtækisins Siemens IT Solutions undirritað samning um að annast innleiðingu á SAP viðskiptakerfum fyrir sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir í Kaupmannahöfn og á Norður Sjálandi. Í tilkynningu segir að heildarsamningurinn er að fjárhæð um 4 milljarðar króna, þar af er hlutur Applicon A/S um 1,8 milljarðar króna. Vinnan við uppsetningu kerfisins tekur um þrjú ár og er gert ráð fyrir að henni ljúki 2012. Um er að ræða stærsta samning sem Nýherji og dótturfélög hafa gert fram til þessa. Region Hovedstaden annast meðal annars rekstur heilbrigðisþjónustu og eru starfsmenn þar um 36 þúsund. Samningur Siemens IT Solutions og Applicon nær til 15 sjúkrahúsa og annarra stofnana heilbrigðisstarfseminnar. Verkefnið felst í uppsetningu á sameiginlegu upplýsingakerfi þessara aðila, sem tekur m.a. til fjárhags, innkaupa, vörustjórnunar, þjónustu og flutninga. Innleitt verður eitt kerfi byggt á SAP hugbúnaði og kemur það í stað fimm upplýsingakerfa, sem Region Hovedstaden hefur notað um árabil. Markmiðið með uppsetningu á nýju kerfi er m.a. að stuðla að öflugri rekstrarstýringu og samhæfingu á starfsemi og innkaupum þessara sjúkrastofnana og tryggja góða yfirsýn yfir rekstur þeirra. Um 10 þúsund heilbrigðisstarfsmenn munu nota kerfið, þegar það verður að fullu uppsett og er gert ráð fyrir að það muni skila verulegum sparnaði í starfsemi heilbrigðisstofnana. Verkefni þetta var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu og var tilboð Siemens IT Solutions og Applicon valið úr hópi ellefu bjóðenda eftir vandað útboðsferli.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Sjá meira